Formenn stjórnarflokkanna ræddu myndun nýrrar ríkisstjórnar og skiptingu ráðuneyta á fundi sínum í dag. Vinna við gerð stjórnarsáttmála er langt komin.
Varsla hefur verið hert til muna á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Fjöldi hælisleitenda er á leið þangað eða kominn að mörkunum.
Loðnuvertíð sem gæti orðið sú stærsta í 20 ár er að hefjast og Bjarni Ólafsson AK heldur til veiða á morgun. Stýrimaðurinn er bjartsýnn.
Fulltrúar þriggja íslenskra stéttarfélaga lögðust gegn því að íslenska flugstéttafélagið fengi inngöngu í Norræna flutningamannasambandið.
Forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til blaðamannafundar vegna mikillar aukningar kórónuveirusmita í landinu.
Hálf öld er í dag frá því að eitt frægasta rokklag heims kom út.
Lengri umfjallanir (frá mínútu 10):
Utanríkisráðherra segir Ísland standa vel þegar kemur að framlögum til loftslagsaðgerða í þróunarríkjum. Gagnrýni tveggja sjálfstæðra rannsóknastofnana sé hvatning til að gera betur. Grænþvottur þróunaraðstoðar sé ekki vandamál hér. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson
Verkfræðingur hjá Eflu segir mikilvægt að hefja strax undirbúning að framleiðslu rafeldsneytis, ella gæti Ísland þurft að flytja inn dýrt rafeldsneyti. Arnar Páll Hauksson ræðir við Hafstein Helgason.
Á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn var ákveðið að verja auknu fé til menningarsamstarfs en niðurskurður hafði verið fyrirhugaður. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þennan áfangasigur við Hrannar Björn Arnarsson, formann Norræna félagsins.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir. Tæknimaður: Mark Eldred