Á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu Jórunnar Viðar tónskálds, en hún fæddist í Reykjavík 7. desember 1918. Í tilefni af því eru verk eftir Jórunni flutt í þættinum, meðal annars ballettinn „Eldur“, svítan „Þjóðlífsþættir“ fyrir fiðlu og píanó og sönglagið „Týnd er hver varða“ úr kvikmyndinni „Síðasti bærinn í dalnum“ frá 1950. Einnig verða sungin hin þekktu jólalög Jórunnar: „Það á að gefa börnum brauð“ og „Jól“, og flutt verða brot úr viðtölum við tónskáldið. Þá flytja Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir lag Jórunnar „Ung stúlka“, en það má finna á geislaplötu þeirra með sönglögum Jórunnar sem nýlega kom út í tilefni af aldarafmælinu. Er það í fyrsta skipti sem þetta lag kemur út á plötu. Lesari í þættinum er Jórunn Sigurðardóttir. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.