Spegillinn

Afsögn fjármálaráðherra, stríð í Ísrael og umhverfisglæpir


Listen Later

11. október 2023
Afsögn fjármálaráðherra var lítið rædd í þingsal Alþingis en þeim mun meira á göngum þess. Magnús geir Eyjólfsson þingfréttamaður segir frá stemmningunni á þingi og Linda H. Blöndal ræðir við stjórnarandstöðuþingmennina Guðmund Inga Kristinsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Jóhann Pál Jóhannsson.
Fimm sjálfboðaliðar frá Rauða hálfmánanum hafa verið myrtir í stríðinu milli Hamas og Ísraels. Þar af létust fjórir bráðaliðar þegar ráðist var á þau við hjálparstörf í morgun. Valgerður Gréta Gröndal segir frá.
Fyrsti snjórinn gæti fallið á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Veðurviðvaranir taka gildi í kvöld. Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir að veturinn kíki aðeins í stutta heimsókn en sé ekki kominn af fullum þunga. Urður Örlygsdóttir ræðir við Eirík Örn Jóhannsson veðurfræðing.
Loðnuvinnslur þurfa mögulega að keyra á olíu í vetur að einhverju leyti, ef ekki rignir duglega næstu vikur og mánuði. Benedikt Sigurðsson ræðir við Hörð Arnarson.
-----
Það kom verulega á óvart að öflugt öryggisnet hers og leyniþjónustu Ísraels skyldi bregðast svo illilega sem raun bar vitni þegar stórum hópi vopnaðra manna tókst aðfaranótt síðasta laugardags að ráðast inn í Ísrael á margvíslegum farartæjum, um leið og Hamas lét þúsundum eldflauga rigna yfir sunnanvert landið. Ásgeir Tómasson fjallar um málið.
Það er sérstakt að strax sé farið að tala um nýtt ráðuneyti ráðherra sem segir af sér að mati prófessors í stjórnmálafræði og það hafi líka fært athyglina frá áliti umboðsmanns um hæfisbrest fjármálaráðherra við bankasöluna. Þetta segir Eva h. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði.
Reynsla Norðmanna af laxeldi í sjó gæti verið Íslendingum lærdómsrík - og víti til varnaðar. Það er skoðun Pauls Larssons, prófessors við norska lögregluháskólann, sem hélt erindi í Háskólanum á Akureyri á dögunum. Þar gerði hann glæpi mannsins gegn náttúru og lífríki að umtalsefni sínu. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir ræðir við Guðmund Oddsson, afbrotafræðing og prófessor í félagsfræði.
Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

152 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

29 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners