Karlmaður á sjötugsaldri og kona um sextugt eru á sjúkrahúsi vegna COVID-19 smits. Hvorugt er á gjörgæslu.
Stjórnvöld í Noregi og í Danmörku hafa látið loka öllum skólum næsta hálfa mánuðinn. Norsku konungshjónin eru í sóttkví.
Fjármálaráðherra sagði á Alþingi í dag að þó að skellurinn vegna veirunnar verði tímabundið ástand geti enginn sagt hvað sá tími verði langur.
Bóndi í Svarfaðardal sem fær ekki að hafa bleikjueldi heima hjá sér án rekstrarleyfis ætlar að kæra sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Veðurstofan varar við suðaustan hríðarveðri á Suðurlandi í kvöld og fram undir miðnætti, með talsverðri snjókomu.
Efasemdir um kosti hnattvæðingarinnar og hvort hún hafi hugsanlega gengið of langt hafa fengið byr undir báða vængi með útbreiðslu COVID-19 veirunnar.
***
Í síðari hluta Spegilsins var rætt við Má Kristjánsson, smitsjúkdómalækni og Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar um heimsfaraldurinn.
Þá fjallaði Sigrún Davíðsdóttir um þá sem hafa efasemdir um kosti hnattvæðingarinnar og hafa fengið byr undir báða vængi með útbreiðslu veirunnar.