Spegillinn

Ákært í hoppukastalamáli, deilt um miðlunartillögu, grágæsaveiðibann


Listen Later

Spegillinn 27. janúar 2023
Umsjón: Ásgeir Tómasson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir
Fimm hafa verið ákærðir fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna fjögurra barna sem slösuðust í hoppukastala á Akureyri fyrir átján mánuðum. Forseti bæjarstjórnar á Akureyri er meðal sakborninga, samkvæmt heimildum fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ólöf Rún Erlendsdóttir sagði frá.
Starfsgreinasambandið bættist síðdegis í hóp þeirra félaga sem gagnrýna ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Fyrr í dag sendu BHM, BSRB og Kennarasambandið út yfirlýsingu þess efnis. Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur áhyggjur af fordæminu sem fylgir ákvörðun ríkissáttasemjara. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, hefur áhyggjur af því hvaða áhrif miðlunartillagan hefur á komandi kjaraviðræður kennara. Andri Yrkill Valsson tók saman.
Evrópusambandið framlengdi í dag viðskiptarefsingar sínar gagnvart Rússlandi um sex mánuði til viðbótar. Refsingarnar ná allt aftur til ársins 2014, þegar Rússar innlimuðu Krímskaga.
Jóhanna Sigurðardóttir, sem var heiðruð af Kvenréttindafélagi Íslands í dag, segir baráttuna ganga of hægt þó hún sé bjartsýn fyrir hönd unga fólksins. Kvenréttindafélag Íslands fagnaði 116 ára afmæli sínu í Iðnó í dag og heiðraði þrjár félagskonur fyrir framlag sitt til kvenréttinda og femínískrar baráttu jafnt hér á landi sem og á heimsvísu, þær Esther Guðmundsdóttur, Kristínu Ástgeirsdóttur og Jóhönnu. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana.
Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir singapúrskri konu á sextugsaldri sem var dæmd fyrir prófsvindl í borgríkinu. Hún var dæmd ásamt þremur öðrum konum sem allar sitja inni vegna málsins. Róbert Jóhannsson tók saman.
Breytingar á alþjóðasamningi um verndun votlendis farfugla sem Ísland er aðili að felur medal annars i sér að banna skuli veidar a gragæsum. Bændur eru uggandi yfir þessu, enda gæsir ekki sérlega velkomnar á túnum og ökrum. Bjarni Rúnarsson sagði frá og talaði við Sigurð Á Þráinsson sérfræðing hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.
Forsætisráðherra Svíþjóðar segir stöðu Svía í öryggis- og alþjóðamálum þá alvarlegustu frá síðari heimsstyrjöldinni. Kári Gylfason sagði frá.
Eldri borgurum fjölgar víða um heim. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti árið 2020 að lýsa árin 2021 til '30 áratug heilbrigðrar öldrunar. Ásgeir Tómasson sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners