Spegillinn 1. júní 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Stjórn Félags íslenskra heimilislækna biður heilbrigðisráðuneytið og Sjúkratryggingar að sýna auknu álagi á heilsugæslunni skilning og veita meira fjármagn til hennar. Rætt við Salóme Ástu Arnardóttur , formann Félags íslenskra heimilislækna.
Stjórnarflokkarnir þrír gætu haldið velli, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi og fengið 34 þingmenn ef kosið yrði nú.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir viðbúið að þörf verði á fleiri bóluefnaskömmtun hingað til lands á næstu árum til að hægt verði að endurbólusetja fólk. Gert er ráð fyrir að yfir 90 prósent fullorðinna hafi í það minnsta fengið einn bóluefnaskammt í lok þessa mánaðar
Sambúð Hvít-Rússa við grannlönd sín í vestri er nú við frostmark og stjórnin í Minsk hefur slitið stjórnmálasambandi við Lettland.
Níu sunnlensk sveitarfélög hafa tekið sig saman og sett á fót nefnd til að skipuleggja Suðurhálendið. Nefndin er ekki stofnuð til höfuðs Hálendisþjóðgarði segir Helgi Kjartansson oddviti Bláskógabyggðar og formaður nefndarinnar.
Lengri umfjöllun:
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landsambands lögreglumanna segir að lögreglumenn kvíði sumrinu vegna manneklu. Ekki hafi verið ráðið í stöður sem urðu til vegna styttingar vinnuvikunnar. Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir að búið sé að fá vilyrði fyrir 900 milljóna króna fjárframlagi til að hægt sé að ráða fleiri lögreglumenn. Bergljót Baldursdóttir ræddi við Sigríði og Fjölni.
Íslensk stjórnvöld hafa fylgst með þróun njósnamála í Danmörku frá því að upplýst var um þau í fyrrahaust. Áhyggjur stjórnvalda beinast að þeim þremur sæstrengjum sem tengja Ísland við umheiminn. Einn þeirra liggur beint héðan til Danmerkur. Rættt er við Guðmund Arnar Sigmundsson, forstöðumann CERT-IS. Arnar Páll Hauksson tók saman.