Gestir þáttarins voru Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri á Nóaborg, Dagný Ósk Aradóttir Pind, lögfræðingur BSRB, og Vilhjálmur Egilsson, fráfarandi rektor Háskólans á Bifröst. Rætt var um kjaraviðræður Eflingar og BSRB og yfirvofandi verkfall, málefni hælisleitenda eftir að brottvísun fjölskyldu sjö ára drengs var afstýrt, útbreiðslu 2019-kórónavírussins, kólnun í hagkerfinu og hugmyndir um sölu á Íslandsbanka.
Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon