Metfjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd verður vísað úr landi á næstunni. Dómsmálaráðherra segir að verið sé að framfylgja lögum sem ekki hafi verið hægt að gera á meðan sóttvarnatakmarkanir voru í gildi á landamærum. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Jón Gunnarsson og Magnús Davíð Norðdahl.
Meðal sviðsmynda sem Almannavarnir skoða vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga er að reisa varnargarða til þess að verja byggð í Grindavík og mikilvæga innviði. Anna Lilja Þórisdóttir talaði við Víði Reynisson.
27 prósent starfsmanna Landspítalans finna fyrir kulnunareinkennum. Framkvæmdastjóri mannauðs á spítalanum segir það mikið áhyggjuefni. Sunna Karen Sigurþórsdóttir talaði við Gunnar Ágúst Beinteinsson
Rússar hafa tekið ákvörðun um að hætta að senda jarðgas til Finnlands. Flutningar verða stöðvaðir strax í fyrramálið. Urður Örlygsdóttir sagði frá.
Forsætisráðherra segir að stjórnarandstöðuflokkarnir ættu mögulega að endurskoða sína stefnu í aðdraganda kosninga, sem hún segir að hafi einkennst af niðurrifi og baktali, þar sem þeir hafi ekki náð góðu gengi í kosningunum.
--------------------------------
Það er ekki laust við að setji svolítinn ugg að fólki þegar fréttir berast af nýrri veiru sem farin er að dreifa sér. Yfirvöld í Svíþjóð hafa skilgreint veiruna, apabólu, sem sjúkdóm sem ógni almannaheill eftir að fyrsta tilfelli sjúkdómsins greindist þar í gær. En hvað í ósköpunum er apabóla? Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni.
Rannsóknir sýna að lög um fæðingar- og foreldraorlof sem sett voru fyrir tuttugu og tveimur árum og hafa síðan verið endurskoðuð, hafa gjörbylt umönnun barna hér á landi. Kristján Sigurjónsson talaði við Guðný Björk Eydal.