Um helmingi færri sjúklingar eru innlagðir á bráðamóttöku nú en þegar mest lét og því ekki þörf á jafn mikilli mönnun, segir aðstoðardeildarstjóri. Hún segir vinnu framkvæmdastjórnar spítalans við að bæta fráflæði hafa borið árangur. Ólöf Ragnarsdóttir talaði við Hildi Dís Kristjánsdóttur.
Forstjóri MAST fagnar því að Ríkisendurskoðun hafi ákveðið að gera úttekt á starfseminni. Vel megi vera að til bóta verði að fá fleiri að aðgerðum í dýravelferðarmálum. Sagði Hrönn Ólína Jörundsdóttir. Ólöf Rún Skúladóttir talaði við hana.
Matvælaráðherra hefur veitt undanþágu frá reglugerð um innfluttan áburð, til að bregðast við minnkuðu framboði. Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir atvinnugreinina hafa óskað eftir breytingu sem þessari. Sagði Vigdís Häsler. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir tók saman.
Tugir leyniskjala fundust við húsleit bandarísku alríkislögreglunnar á heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Listi yfir gögnin sem fundust hefur verið birtur. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
Og við lítum við í teiti í miðbæ Reykjavíkur þar sem UN Women á Íslandi hrindir úr vör herferð til styrktar hinsegin fólki. Ólöf Rangarsdóttir verður á staðnum.
Í fyrravor tók gildi stytting vinnutíma fólks í vaktavinnu hjá því opinbera. Vinnuskylda níu þúsund starfsmanna hjá um sjö hundruð vinnustöðum gat styst í 32 klukkustundir á viku. Frá því að þetta tók gildi hefur grannt verið fylgst með innleiðingunni. Bára Hildur Jóhannsdóttir verkefnisstjóri hjá Betri vinnutíma segir að í undirbúningi hafi markvisst verið unnið að því að einfalda upplýsingar og allir farið í gegnum sama ferlið. Anna Kristín Jónsdóttir talaði við Báru Hildi Jóhannsdóttur.
Aldrei hafa fleiri einstaklingar á flótta leitað hingað til lands. Flestir umsækjendur fara til þriggja sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, Reykjanesbæjar og Hafnarfjarðarbæjar. Nú hefur bæjarstjóri Hafnarfjarðar sagt bæjarfélagið komið að þolmörkum, það geti ekki tekið við fleirum og kvartar undan því að ekki sé hlustað. Félagsmálaráðherra segir þetta vera vaxtarverki. Nichole Leigh Mosty er forstöðumaður fjölmenningarseturs. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hana.