Gestir þáttarins eru Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingmaður VG og Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingarinnar. Rætt var um málefni Ríkislögreglustjóra og áhrif á löggæsluna, bótakröfur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmáls og afstöðu Ríkislögmanns, uppsagnahrinu vikunnar og horfur í efnahagsmálum og loks tæpt á samgöngumálum í höfuðborginni í ljósi samkomulags um samgöngubætur og loftslagsmál.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir
Tæknimaður í Efstaleiti: Ragnar Gunnarsson, Tæknimaður á Akureyri: Björgvin Kolbeinsson