Bíóblaður

Bíóblaður

By Hafsteinn SæmundssonTV & Film
Download on the App Store

Bíóblaður episodes

  • #281 Topp 10 með Ásgeiri Sigurðs

    Ásgeir Sigurðsson er ungur kvikmyndagerðarmaður en hann gerði ásamt Antoni Karli kvikmyndina Harmur sem kom út árið 2021.


    Ásgeir gaf út fyrir stuttu sjónvarpsseríuna Gestir en serían er á streymisveitu Símans. Ásgeir skrifaði þættina, leikstýrði, framleiddi og leikur aðalhlutverkið ásamt Diljá Pétursdóttur.


    Ásgeir kíkti til Hafsteins og ræddi þættina og kom einnig með sinn topp 10 lista yfir sínar uppáhalds kvikmyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu sterk asísk kvikmyndagerð er, hversu magnaður leikari Ryan Gosling er, hvaða mynd hefur haft mestu áhrifin á Ásgeir, hversu sturlaður Denis Villeneuve er sem leikstjóri og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 9 min
  • #280 Topp 10 með Ísrael Daníel Hanssen

    Ísrael Daníel Hanssen hefur komið áður til Hafsteins og rætt Óskarsverðlaunin en Ísrael er algjör sérfræðingur þegar kemur að Óskarnum. Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín til að ræða eitthvað annað en Óskarinn og því mætti Ísrael með topp 10 listann sinn.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu fullkomin ævintýramynd Jurassic Park er, hversu góður Marlon Brando er í The Godfather, hvort Steve Martin sé bestur í Three Amigos, hversu sturluð 90’s tónlistin er í The Rock og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 52 min
  • #279 Óskarinn 2024: Part II með Agli, Ísrael og Teiti

    Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins.


    Í þessum seinni hluta ræða þeir myndirnar Oppenheimer, Anatomy of a Fall, American Fiction, The Holdovers og Killers of the Flower Moon.


    Strákarnir ræða einnig hversu góður leikur er í Anatomy of a Fall, hvort Oppenheimer sé besta Nolan myndin, hversu fyndin og hárbeitt American Fiction er, hvort DiCaprio hefði átt að fá tilnefningu og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 8 min
  • #278 Óskarinn 2024: Part I með Agli, Ísrael og Teiti

    Kvikmyndaneminn Egill Andri, Óskarsverðlaunasérfræðingurinn Ísrael Daníel og kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíktu til Hafsteins til að ræða þessar tíu kvikmyndir sem eru tilnefndar sem besta mynd ársins.


    Í þessum fyrri hluta ræða þeir myndirnar Barbie, Maestro, Past Lives, Poor Things og The Zone of Interest.


    Strákarnir ræða einnig hversu vinsæl Barbie var, hvort Greta og Margot hefðu átt að vera tilnefndar fyrir leikstjórn og leik, hvort það sé skilyrði fyrir Akademíuna að lesa handritin sem eru tilnefnd og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 12 min
  • #277 Blade með Kilo

    ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 11. nóvember 2022.


    Í þessum þætti ræða strákarnir Blade seríuna en þeir eru báðir miklir Blade aðdáendur.


    Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel fyrsta myndin eldist, hvort Del Toro hafi staðið sig vel með mynd númer tvö, hvort Ryan Reynolds leiki alltaf sama karakterinn, hvort það hafi verið rétt ákvörðun að hafa Drakúla sem vonda kallinn í þriðju myndinni, hversu erfiður Wesley Snipes var við tökur á þriðju myndinni og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    1 hr 45 min
  • #276 Bíóspjall með Ivy Björgu

    Ivy Björg er áhættuleikari, Parkour iðkandi og loftfimleikalistamaður. Ivy hefur líka gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og kvikmyndagerð og Hafsteinn var því spenntur að fá hana til sín í fjölbreytt bíómyndaspjall.


    Í þættinum ræða þau meðal annars hversu mikið Ivy elskar James Cameron, hvort hún væri til í að láta kveikja í sér sem áhættuleikari, hversu stórt Blu Ray safn hún á, hversu erfið Dahmer serían var, Cobra-Kai og karate bakgrunnurinn hennar Ivy og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 33 min
  • #275 Lethal Weapon með Anthony, Hansel og Snorra

    ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 25. júlí 2023.


    Sjómaðurinn Anthony Evans Berry, leikarinn Hansel Eagle og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina þekktustu kvikmyndaseríu allra tíma, Lethal Weapon.


    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er besta Lethal Weapon myndin, hversu miklar bíómyndalöggur Riggs og Murtaugh eru, hversu gott chemistry er á milli Gibson og Glover, Rene Russo og hennar innkomu í Lethal Weapon 3, hvort einhver annar en Joe Pesci hefði getað leikið Leo Getz, hversu svalur Jet Li er sem vondi kallinn í Lethal Weapon 4 og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 27 min
  • #274 Bíóspjall með Brynjólfi Guðmunds

    Brynjólfur Guðmundsson lærði húsgagnasmíði og verkfræði áður en hann flutti út með fjölskylduna til Los Angeles til að láta drauminn rætast.


    Brynjólfur hefur alltaf haft gríðarlegan áhuga á kvikmyndum og í fyrra ákvað hann að sækja um nám við kvikmyndaskólann New York Film Academy. Brynjólfur lærir ýmislegt í skólanum en sérstök áhersla er lögð á handritagerð.


    Brynjólfur kíkti til Hafsteins og ræddi allt milli himins og jarðar. Í þættinum ræða þeir meðal annars námið hans Binna í L.A., mikilvægi þess að elta draumana, hversu stíf dagskráin er hjá honum yfir árið, Rocky og hversu mikill Stallone aðdáandi Binni er, hvort leikstjórar eigi að taka fleiri áhættur, hversu geggjuð Jackie Brown er, ferilinn hans Christopher Nolan og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 32 min
  • #273 Sexy 90’s með Kiddu Svarfdal

    ATH! Þessi þáttur kom upphaflega út sem áskriftarþáttur 17. apríl 2023.


    Ritstjóri hun.is og einn af stjórnendum hlaðvarpsins Fullorðins, Kidda Svarfdal, kíkti til Hafsteins til að ræða erótíska þrillera. Í þættinum ræða þau myndirnar Basic Instinct, Sliver, Jade og Color of Night en þessar myndir voru þó nokkuð vinsælar á tíunda áratugnum.


    Þau ræða einnig hversu mikill aldursmunur var á Michael Douglas og Sharon Stone í Basic Instinct, hversu hræðilegur söguþráðurinn er í Color of Night, hversu ágengur Tom Berenger var í Sliver, hversu algengar reykingar voru á þessum tíma, kynlífsatriðin, hvort svona myndir séu í rauninni eitthvað kynþokkafullar og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 16 min
  • #272 Topp 10: Part II með Óla, Mána og Haffa

    Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II.


    Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hvaða áhrif Spider-Man 2 hefur á Óla, hversu góð Mána finnst The Silence of the Lambs vera, hversu mikið Hafsteinn elskar Pulp Fiction, hvernig The Fountain er ekki mynd fyrir alla og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 45 min

About Bíóblaður

From the publisher's feed

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

More shows like Bíóblaður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

11 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Tveir á toppnum by Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

1 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners