Bíóblaður

Bíóblaður

By Hafsteinn SæmundssonTV & Film
Download on the App Store

Bíóblaður episodes

  • #271 Topp 10: Part I með Óla, Mána og Haffa

    Kvikmyndasérfræðingarnir og Bíóblaðurs fastagestirnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 kvikmyndir. Hafsteinn kom einnig með sinn topp 10 lista og úr varð því rúmlega fimm klukkutíma spjall sem skiptist í Part I og Part II.


    Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu erfitt er að gera svona topp 10 lista, hvort The Rocketeer sé hin fullkomna ævintýramynd, hversu mikið Óli elskar For a Few Dollars More, af hverju Hafsteinn setur Barry Lyndon á listann sinn þrátt fyrir einungis eitt áhorf, Drakúla og hversu góður Bela Lugosi er í hlutverki greifans og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 50 min
  • #270 Movie Legends: Hugleikur Dagsson vs. Óli og Máni

    Kvikmyndasérfræðingurinn Hugleikur Dagsson keppir við kvikmyndasérfræðingana Óla Bjarka og Mána Frey í pökkuðum spurningaþætti!


    Óli og Máni hafa unnið tvær keppnir og virðast vera óstöðvandi og Hafsteinn ákvað því að fá mjög verðugan andstæðing til að keppa við þá. Hugleikur Dagsson er gríðarlega öflugur keppandi og hefur sjálfur unnið nokkrar kvikmyndaspurningakeppnir.


    Strákarnir skiptast á að svara alls konar kvikmyndaspurningum en þar á meðal eru spurningar um 70’s glæpamyndir og 80’s grínmyndir, leikstjóraspurningar og plakatspurningar. Þessi þáttur er algjört skylduáhorf fyrir alla kvikmyndaaðdáendur.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    1 hr 56 min
  • #269 2023 með Ásgeiri Kolbeins

    Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2023.


    Strákarnir fara vel yfir árið og ræða meðal annars hversu þreytt þetta ofurhetjudæmi er orðið, hvort DiCaprio hafi náð að leika aumingja í Killers of the Flower Moon, hvort Barbie hafi hitt í mark hjá Ásgeiri, hversu vel heppnuð Oppenheimer var, hvort Tom Cruise ætti ekki að snúa sér að öðruvísi myndum eftir að nýja Mission Impossible floppaði, hvaða sjónvarpsseríur Ásgeir horfði á á árinu, hversu mikið strákarnir elskuðu John Wick 4 og margt, margt fleira.


    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    3 hr 26 min
  • #268 2023 Quiz: Gummi Sósa vs. Snorri vs. Oddur Klöts

    Árið er senn á enda og Hafsteinn ákvað að enda það með stæl með því að fá núverandi spurningameistarann, Snorra Guðmundsson, til að koma og verja titilinn sinn í 2023 spurningakeppni. Hafsteinn bauð einum Bíóblaðurs fastagesti, Gumma Sósu, til að keppa við Snorra en Gummi Sósa hefur komið sterkur inn sem þrælskemmtilegur gestur og verðugur andstæðingur. 

     

    Strákunum var hinsvegar komið á óvart með öðrum keppanda, Oddi Klöts, en Oddur mætti óvænt í miðjum upptökum. Úr varð frábær keppni þar sem strákarnir skiptast á að svara 2023 kvikmynda og sjónvarpsþátta spurningum.

     

    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 7 min
  • #267 Comedy Quiz: Kilo vs. Villi Neto

    Rapparinn Kilo og leikarinn Villi Neto eru miklir kvikmyndaáhugamenn og grínistar. Strákarnir kíktu til Hafsteins til að keppa í skemmtilegri spurningakeppni. Hafsteinn samdi 60 spurningar sem allar snúast um grínmyndir að einhverju leyti.

     

    Í þættinum þurfa strákarnir meðal annars að svara almennum spurningum, flokkaspurningum og plakatspurningum. Hvað ár kom Mean Girls út? Hver var fyrsta myndin sem framleiðslufyrirtækið Happy Madison gaf út? Horfið á þáttinn til að komast að því.

     

    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    1 hr 43 min
  • #266 Rétt eða Rangt með Blaffa og Jóa Degi

    Rappararnir Blaffi og Jói Dagur kíktu til Hafsteins til að fara í skemmtilegan leik. Hafsteinn samdi tíu fullyrðingar sem hann varpaði á sjónvarpið í stúdíóinu. Strákarnir skiptust síðan á því að segja hvort fullyrðingin væri rétt eða röng.

     

    Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Blaffi myndi lemja Ghostface en myndi líklegast vera stútað af Michael Myers, hversu mikið Jói Dagur elskar The Big Lebowski, hvort Omni-Man gæti drepið Superman, hvort Samuel L. Jackson sé svalari en Denzel Washington og margt, margt fleira.

     

    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 8 min
  • #265 Íþróttir með Snævari Sölva

    Snævar Sölvi Sölvason er kvikmyndagerðarmaður sem hefur gert indie kvikmyndir á borð við Albatross og Eden. Snævar er nýbúinn að gera sjónvarpsseríu fyrir RÚV sem heitir Skaginn en serían fjallar um fótboltalið ÍA og þeirra sigurgöngu á árunum 1992 til 1996.

     

    Snævar kíkti til Hafsteins til að ræða seríuna og íþróttamyndir. Strákarnir ræða meðal annars myndirnar Happy Gilmore, The Wrestler, Raging Bull, Any Given Sunday, Free Solo og margar aðrar.

     

    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    2 hr 37 min
  • Bíóblaður áskrift #39 - Come and See með Marteini og Hauki

    — (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —

    Áhættuleikarinn Marteinn Úlfur Gunnarsson og þungarokkarinn Haukur Þór Valdimarsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina hrikalegustu stríðsmynd allra tíma, rússnesku myndina Come and See (Idi i Smotri).

     

    Strákarnir ræða meðal annars hversu erfið myndin er, hversu mikilvægt er að sjá svona útgáfu af stríðsmynd, hversu lengi leikstjórinn var að gera hana, hlöðuatriðið fræga og margt, margt fleira.

     

    Þátturinn er 72 mínútur.

    Hægt er að horfa á hann eða hlusta á heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

    11 min
  • #264 Kilo snýr aftur!

    Rapparinn Kilo er einn af fastagestum Bíóblaðurs og einn sá vinsælasti. Stærri og skemmtilegri persónuleika er erfitt að finna og Hafsteinn var því spenntur að fá hann aftur í heimsókn.

     

    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hver er versta streymisveitan, hvaða mynd strákarnir ættu að horfa á saman í fyrsta commentary þætti Bíóblaðurs, hversu mikil áhrif Erika Eleniak hafði á þá þegar þeir voru unglingar, hvort Invincible sé betri en The Boys, hversu gamlir strákarnir eru orðnir, Blue Eye Samurai og hversu sturluð sú sería er og margt, margt fleira.

     

    Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.

    1 hr 15 min
  • Bíóblaður áskrift #38 - Hannibal Lecter með Mána

    — (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —

    Kvikmyndasérfræðingurinn Máni Freyr kíkti til Hafsteins til að ræða einn ógeðslegasta morðingja kvikmyndasögunnar, mannætuna Hannibal Lecter.

     

    Í þættinum ræða strákarnir meðal annars af hverju Lecter er svona áhugaverður karakter, muninn á myndunum og bókunum, hversu sturluð The Silence of the Lambs er, hversu mikið maður saknar Jodie Foster í Hannibal, hversu áhugaverður og ógeðslegur karakter Mason Verger er, hversu leiðinleg Hannibal Rising er, hvort Mads Mikkelsen sé besti Lecter-inn og margt, margt fleira.

     

    Þátturinn er rétt tæpir 3 klukkutímar.

    Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is

    11 min

About Bíóblaður

From the publisher's feed

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

More shows like Bíóblaður

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

138 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

11 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

17 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Tveir á toppnum by Tveir á toppnum

Tveir á toppnum

1 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners