
Sign up to save your podcasts
Or


— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —
Kvikmyndasérfræðingurinn Máni Freyr kíkti til Hafsteins til að ræða einn ógeðslegasta morðingja kvikmyndasögunnar, mannætuna Hannibal Lecter.
Í þættinum ræða strákarnir meðal annars af hverju Lecter er svona áhugaverður karakter, muninn á myndunum og bókunum, hversu sturluð The Silence of the Lambs er, hversu mikið maður saknar Jodie Foster í Hannibal, hversu áhugaverður og ógeðslegur karakter Mason Verger er, hversu leiðinleg Hannibal Rising er, hvort Mads Mikkelsen sé besti Lecter-inn og margt, margt fleira.
Þátturinn er rétt tæpir 3 klukkutímar.
Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Hrafnkell Hugi er tónlistarmaður og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hrafnkell er meðlimur hljómsveitarinnar Celebs en hljómsveitin tók þátt í undankeppni Eurovision fyrr á árinu með laginu sínu Dómsdags Dans. Keli kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt bíóspjall.
Í þættinum ræða þeir meðal annars Conan the Barbarian, Marvel og DC, hvernig kvikmyndaiðnaðurinn hefur breyst, möguleg áhrif A.I. á listgreinar, Pixar og teiknimyndir, af hverju í ósköpunum Uwe Boll fær ennþá að gera bíómyndir og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Mission Impossible kvikmyndaseríuna.
Í þessum seinni hluta ræða strákarnir Mission Impossible: Rogue Nation, Mission Impossible: Fallout og Mission Impossible: Dead Reckoning.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Mission Impossible kvikmyndaseríuna.
Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir Mission Impossible, Mission Impossible II, Mission Impossible III og Mission Impossible: Ghost Protocol.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —
Kvikmyndaáhugamennirnir Gummi Sósa, Oddur Klöts og Kristinn Reyr kíktu til Hafsteins til að ræða einn skemmtilegasta hryllingsmyndaleikstjóra allra tíma, John Carpenter.
Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hversu mikið meistaraverk The Thing er, hvort The Fog sé jafngóð og Jaws, hversu klikkuð In the Mouth of Madness er, hversu leiðinleg The Ward er, hvort hægt sé að kalla Carpenter B-mynda leikstjóra, hversu góð Cigarette Burns hefði verið ef hún hefði verið í fullri lengd og margt, margt fleira.
Þátturinn er 2 klukkutímar.
Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndaáhugamennirnir Gummi Sósa, Oddur Klöts og Kristinn Reyr kíktu til Hafsteins til að ræða einn skemmtilegasta hryllingsmyndaleikstjóra allra tíma, John Carpenter.
Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hversu leiðinleg Halloween er, hvort They Live sé virkilega góð eða ekki, hversu töff James Woods er í Vampires, hversu mikið Gummi hatar Village of the Damned, hvort Ghosts of Mars sé lélegasta Carpenter myndin og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Lovísa Lára er uppistandari, kvikmyndagerðarkona, hlaðvarpsstjórnandi og stofnandi hryllingsmyndahátíðarinnar, Frostbiter.
Lovísa er mikill hryllingsmyndaaðdáandi og Hafsteini fannst því upplagt að fá hana til sín í október og ræða alls konar hrylling við hana.
Í þættinum ræða þau meðal annars true crime podcöst, fjöldamorðingja og mannlegt eðli, heitustu hryllingsmynd ársins Talk to Me, af hverju hryllingsmyndir eru svona skemmtilegar, ást Lovísu á Evil Dead kvikmyndaseríunni, hversu átakanleg Martyrs er, hversu mikið Lovísa elskar Peter Jackson og hans eldri splatter myndir og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
— (BROT ÚR ÁSKRIFTARÞÆTTI) —
Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th.
Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar.
Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars hvernig Jason berst í rauninni við Carrie í Part VII, hversu leiðinleg Jason Takes Manhattan er, af hverju Jason Goes to Hell er lélegasta myndin, hversu gaman það var að sjá Freddy Krueger berjast við Jason, hversu vel heppnuð 2009 endurgerðin er, hvort það sé ekki algjört möst að framleiða þrettándu myndina í seríunni og margt, margt fleira.
Þátturinn er 2 klukkutímar.
Hægt er að horfa á hann eða hlusta í heild sinni með því að gerast áskrifandi á www.biobladur.is
Kvikmyndaáhugamennirnir Jökull Jónsson, Pétur Ragnhildarson og Hörður Ásbjörnsson kíktu til Hafsteins til að ræða eina merkilegustu slasher seríu allra tíma, Friday the 13th.
Friday the 13th serían er auðvitað þekktust fyrir að hafa kynnt heiminum fyrir fjöldamorðingjanum Jason Voorhees og strákarnir kafa djúpt í þessa seríu og ræða allar tólf myndirnar.
Í þessum fyrri hluta ræða þeir meðal annars fyrstu sex myndirnar í seríunni, hvernig kvikmyndaeftirlit Bandaríkjanna lét klippa margar af þessum myndum, hver er þeirra uppáhalds Friday mynd, hver er versta myndin, hversu vel heppnuð fyrsta myndin er sem ódýr hryllingsmynd, hvers vegna slasher myndir eru skemmtilegar og margt, margt fleira.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
Imma Helga er áhættuleikari, MMA keppandi og margfaldur Íslandsmeistari í hnefaleikum. Hún hefur unnið mikið við áhættuleik síðastliðin ár en stunt bransinn á Íslandi hefur stækkað gríðarlega á stuttum tíma.
Imma Helga hefur bæði unnið mikið við íslenska kvikmynda/sjónvarpsþátta framleiðslu en einnig hefur hún tekið þátt í erlendum verkefnum sem hafa verið tekin upp hér á landi.
Imma kíkti til Hafsteins og sagði honum meðal annars frá sínum bakgrunni í bardagaíþróttum, hver er besta sjálfsvörnin, hvernig hún hefur sérhæft sig sérstaklega í háum föllum, þegar hún slasaðist mikið við tökur á hryllingsmyndinni Dead Snow 2, hversu gott er að vinna með Jóni Viðari en þau reka fyrirtækið Icelandic Stunts saman og hversu flottur áhættuleikari Jackie Chan er.
Þátturinn er í boði Sambíóanna og Popp Smells frá Nóa Síríus.
From the publisher's feed

138 Listeners

11 Listeners

5 Listeners

22 Listeners

26 Listeners

89 Listeners

32 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

17 Listeners

36 Listeners

2 Listeners

1 Listeners

27 Listeners

13 Listeners