Bjarney Sonja Breidert elskaði að leysa þrautir þegar hún var lítil og það var enginn hissa þegar hún valdi verkfræði og tölvunarfræði. Bjarney rekur ásamt eiginmanni sínum Dr. Christoph Breidert hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur ýmis hugbúnaðarverkefni fyrir fyrirtæki og eru þau með skrifstofur m.a. á Spáni, Frankfur Berlin og Reykjavík. Hún segir frá því hvernig það er að reka nútímafyrirtæki þar sem fjölbreytileikinn ræður för. Þau hjónin eiga tvö börn Jakob og Elvu, en Elva fæddist fyrir tímann og er fötluðu. Bjarney svarar því fallega hvernig það er að eignast fatlað barn.