Spegillinn

Brennisteinsfnyk leggur af Öskju, hælisleitendamál


Listen Later

Samband íslenskra sveitarfélaga mótmælir því að þau séu gerð ábyrgð fyrir málefnum hælisleitenda. Það sé málaflokkur sem heyri undir ríkið.
Hatursorðræða, hróp og gelt eru ólíðandi, segir formaður Samtakanna 78. Ákveðinn hópur fólks sýni hinsegin fólki oft slíka framkomu.
Helmingslíkur eru á að árið í ár verði það heitasta frá upphafi mælinga. Þetta er mat Haf- og loftslagsrannsóknastofnunar Bandaríkjanna.
Forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri segir að aukinn fjöldi ferðamanna hafi mikil áhrif á starfsemina. Það verði að ræða hvernig takast eigi á við fjölgunina.
Hópur foreldra bíður eftir að fá að vita hvort börnin þeirra komast í leikskóla í Reykjavík í haust.
Vesturafríska efnahagsbandalagið, Ekowas, fordæmir ákvörðun valdaræningjanna í Níger um að ákæra forseta landsins fyrir landráð.
***
Það hitnar í Víti og land hefur risið um tugi sentimetra við Öskju síðustu tíu mánuði. Eldfjallafræðingur telur að þar gæti næst gosið á landinu. Í Speglinum bárust ný tíðindi frá flugmanni sem fann megnan brennisteinsþef þegar hann flaug yfir Öskju í dag. Vísindamenn halda til mælinga við Öskju á morgun. Engar stórkoslegar breytingar er að sjá á mælum að sögn náttúruváfræðings á Veðurstofunni.
Færa á skipulag og framkvæmd þjónustu við börn með fjölþættan vanda að mestu á eina hendi, gangi tillögur starfshóps eftir. Þjónustan á að batna og peningar að sparast.
Vesturafríska efnahagsbandalagið, Ekowas, fordæmir ákvörðun valdaræningjanna í Níger um að ákæra forseta landsins fyrir landráð.
Umsjónarmaður Spegilsins var Ragnhildur Thorlacius. Tæknimaður var Mark Eldred. Fréttaútsendingu stjórnaði Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

151 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

29 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners