Spegillinn

Brottvísanir hælisleitenda og landsfundur Sjálfstæðisflokks


Listen Later

Spegillinn 4. nóvember 2022
Hælisleitandi sem vísað var úr landi til Grikklands segir ekkert nema götuna bíða sín þar; hann hafi verið beittur harðræði. Dómsmálaráðherra segir brottvísun óyndisúrræði en almenningur hafi ekki endilega allar upplýsingar um þessi mál. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Mohammedfs Alkurd og Sunna Karen Sigurþórsdóttir ræddi við Jón Gunnarsson.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins lagði áherslu á stöðugleika í setningarræðu sinni á landsfundi flokksins síðdegis. Þá bauð hann þá sem hefðu yfirgefið flokkinn vegna Evrópumála velkomna aftur heim.
Drónaeftirlit Fiskistofu hefur sýnt að brottkast er stundað á tæplega helmingi báta sem flogið er yfir. Ögmundur Knútsson, fiskistofustjóri vísar á bug að drónum sé mest beint að smábátum. Ágúst Ólafsson talaði við hann.
Endurupptökudómur telur sig ekki hafa heimild til að vísa hrunmálum til Landsréttar þrátt fyrir dóma Hæstaréttar þess efnis. Störukeppni dómstólanna að dómi vararíkissaksóknara. Alexander Kristjánsson tók saman.
Sænsk stjórnvöld eru hvött til að bæta upplýsingaöflun um mismunun og rasisma þar í landi. Teymi á vegum Sameinuðu þjóðanna telur að Svíar þurfi að taka kerfisbundinn rasisma fastari tökum. Pétur Magnússon sagði frá.
------------
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins vék að sölu bankanna í setningarræðu sinni á landsfundi, oft hefði verið ályktað þar að að ríkið skyldi ekki eiga fjármálafyrirtæki og því vildi hann framfylgja. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður fylgist með landsfundinum og segir að formannskjör á sunnudag setji að sjálfsögðu svip á fundinn.
Fjárhagsstaða sveitarfélaga er víða erfið. Gert er ráð fyrir fimmtán milljarða halla á Reykjavíkurborg í ár og fjögur hundruð millarða króna halla á Akureyri á næsta ári. Bjarni Rúnarsson ræddi við Sigurð Ármann Snævarr, sviðsstjóra hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um stöðuna.
Fræðimenn hafa löngum brotið heilann um rúnastein sem fannst í miðju Oklahomaríki í Bandaríkjunum og eru í þjóðgarði helguðum honum. . Fræðakona helgaði líf sitt því að rannsaka rúnirnar og eignaði þær víkingum. Þær kenningar hafa verið hraktar að mestu og líklegt að norrænn innflytjandi hafi klappað rúnirnar í steininn snemma á 19. öld. Kristján Sigurjónsson sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred. Stjórn fréttaútsendingar: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

27 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners