Spegillinn

Bruni á Ásbrú og nýr forsætisráðherra Bretlands


Listen Later

Erna Kristín Bjarnadóttir, sem missti allt sitt í eldsvoða við Ásbrú í morgun meðtók það ekki þegar hún sá lögreglu og slökkvilið að störfum fyrir utan húsið heldur fór einfaldlega að gráta. Hún reiknar með að fjölskyldan þurfi að byrja allt upp á nýtt. Sólveig Klara Ragnarsdóttir talaði við Ernu. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman.
Ekkert í framburði mannsins sem var skotinn á Blönduósi varð til þess að hann fékk stöðu sakbornings í málinu, að sögn lögreglustjóra. Það hafi aðeins verið gert til að veita honum meiri réttindi en ella. Ágúst Ólafsson sagði frá.
Til að eldri borgarar geti verið lengur heima þarf fé segir María Fjóla Harðardóttir, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, hins vegar spari það peninga til lengri tíma. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir talaði við hana.
Ísraelski herinn segir afar líklegt að ísraelskur hermaður hafi skotið fréttamann Al Jazeera til bana á Vesturbakkanum í maí. Lögmaður hersins útilokaði þó að hermaðurinn verði sóttur til saka. Þórgnýr Einar Albertsson sagði frá.
--------------
Liz Truss, verðandi forsætisráðherra Bretlands, lofar afgerandi aðgerðum til að rétta af efnahag landsins og koma almenningi til aðstoðar vegna síhækkandi verðlags á nauðsynjavörum. Ásgeir Tómasson tók saman.
Þjóðarátak þarf til að laga Íslendinga að loftslagsbreytingum sem framundan eru og tíminn er knappur. Þetta segir Guðlaugur Þo?r Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann.
Hvorki í ár né á því næsta verða samræmd próf lögð fyrir í grunnskólum. Mennta- og barnamálaráðuneytið greindi frá því í síðustu viku að unnið væri að þróun á nýju námsmati; Rúnar Sigþórsson prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri segir deilur um samræmt próf nærri jafngömul skyldunámi í landinu. Hann fagnar því að þróa eigi nýtt námsmat og færa nær skólunum en telur erfitt að tvinna saman endurgjöf til nemenda og upplýsingasöfnun um skólakerfið.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Kormákur Marðarson. Stjórn útsendingar fréttahluta: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

148 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

14 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners