Ég var 38 ára gömul og hugsaði nei, þetta er búið. Nú fer ég í leshring og stafagöngu með konum á mínum aldri,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri sem kynntist kærastanum Heimi Sverrissyni fyrir tíu árum, þá nýskilin. Nýtt leikár er loksins hafið í Borgarleikhúsinu og kveðst Brynhildur óþreyjufull að fá að bjóða áhorfendum á sýningar í stóra salnum eftir margra mánaða lokun.
Brynhildur Guðjónsdóttir ákvað eftir BA-nám í frönsku að hætta við öll áform um að verða læknir og flugmaður og læra frekar leiklist úti í London enda hefur henni aldrei leiðst athyglin og hún nýtur sín jafnan best þegar hún hefur sjálf orðið. „Ég talaði út í eitt sem krakki og geri það enn. Það er mjög heppilegt fyrir leikkonuna en leikhússtjórinn þarf stundum að passa sig. Listamaðurinn hefur meira frelsi en leikhússtjórinn sem tekur ríkari ábyrgð og á að gera það,“ segir Brynhildur í samtali við Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1.