Spegillinn

COP-27, formannsslagur Sjálfstæðisflokks og kosningar í Ísrael


Listen Later

Spegillinn 1. nóvember 2022
Kjörstöðum í Danmörku verður lokað klukkan sjö og þá verður birt útgönguspá. Niðurstöðum þingkosninganna er beðið með mikilli eftirvæntingu.
Formaður borgarráðs segir að Reykvíkingar muni ekki finna fyrir mestu aðhaldsaðgerðum borgarinnar frá hruni, þar sem aðhaldið komi innan frá. Það stefnir í fimmtán milljarða króna halla og fulltrúar minnihlutans hafa miklar áhyggjur af stöðunni.
Matvælastofnun segir að orðræða í garð starfsfólks hafi verið óvægin í tengslum við dýravelferðarmál. Stofnunin hafi farið að lögum í slíkum málum.
Ekkert dýr innbyrðir meira örplast en steypireyðurin - stærsta dýr í heimi, eða um tíu milljónir plasteinda á dag.
Formaður Loftslagsráðs segir að orkukrísa í Evrópu sé til komin vegna aðgerðaleysis í loftslagsmálum. Spenna í alþjóðasamfélaginu komi til með að lita umræður á komandi loftslagsþingi.
-----
Loftslagsráðstefnan COP-27 hverfist að stórum hluta um að framfylgja áður útgefnum loforðum og skuldbindingum þjóða. Parísarsamkomulagið er orðið sjö ára gamalt og enn er langt í land að allar þær þjóðir sem kvittuðu undir það standi við sinn hluta. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs segir að þjóðir heims verði að koma sér saman um aðgerðir þrátt fyrir sundrung í alþjóðastjórnmálum. Orkukrísan sem ríki víða um heim sé birtingarmynd aðgerðaleysis í loftslagsmálum. Spegillinn ræddi við Halldór og við spurðum fyrst við hverju mætti búast á COP 27.
Á sunnudaginn er formannskjör á dagskrá landsfundar Sjálfstæðisflokksins. Sitjandi formaður er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Bjarni hefur verið formaður frá 2009 og gefur kost á sér áfram. Aðeins Ólafur Thors sem var formaður í 27 ár og Davíð Oddsson sem gegndi formennsku í fjórtán ár hafa setið lengur á þeim stóli. Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra tilkynnti um helgina að hann sæktist eftir að verða formaður, fólk hefði áhyggjur af stöðu flokksins. Mörgum hefur reynst erfitt að greina stefnuágreining milli Bjarna og Guðlaugs sem hafa báðir starfað í Sjálfstæðisflokknum um áratugaskeið. Fundurinn um helgina verður haldinn í Laugardalshöll og þar eiga um tvö þúsund fulltrúar setu- og kosningarétt. Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðiprófessor segir ekkert einfalt svar við því hvort formannsslagur sé góður eða vondur fyrir stjórnmálaflokk.
Nýlokið er æsispennandi forsetakosningum í Brasilíu þar sem munurinn á fylgi frambjóðenda hefði vart getað verið minni. Í Danmörku eru þingkosningar í dag þar sem útilokað er að spá fyrir um hvort mið- og vinstri eða mið- og hægristjórn verður við v
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

27 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners