Erla Björnsdóttir er stofnandi og stjórnarformaður Betri svefns.Erla hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði ásamt samstarfsmönnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Erla hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi. Í h Hún stendur fyrir ráðstefnu um svefn sem fram fer í Hörpu í október. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er dr. Matthew Walker sem slegið hefur í gegn um heim allan með bók sinni Why we sleep. Walker er prófessor við Harvard-háskóla og sérfræðingur í svefni, sálfræði og taugalífeðlisfræði.