Draumaliðið

Draumaliðið

By Jói SkúliSports
Download on the App Store

Draumaliðið episodes

  • Daníel Laxdal
    Beinskeytt, to the point og no nonsense. Það er þannig sem Daníel Laxdal rúllar inná vellinum og það var uppleggið hans sömuleiðis þegar hann mætti í Draumaliðið og valdi sitt draumalið skipað bestu leikmönnum sem hann hefur spilað með. Besta byrjunarlið Stjörnunnar síðustu 15 árin.
    35 min
  • Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
    Sigurbjörn Hreiðarsson er sennilega ein mesta goðsögn í sögu Knattspyrnufélagsins Vals enda spilaði hann með liðinu í 19 ár og var fyrirliði bróðurpart þess tíma. Þrátt fyrir gylliboð annarra og miklu betri liða á erfiðum árum hélt hann alltaf tryggð við klúbbinn og var verðlaunaður vel á árunum 2005 til snemmsumars 2008 þegar Valur unnu flestöll mót sem í boði voru hvort sem var á veturna, vorin, sumrin eða haustin. Bjössi gerði upp 19 ára rússibanareið sem leikmaður á Hlíðarenda og stillti upp frábæru Draumaliði og sett met í shoutouti á leikmönnum á varamannabekkinn.
    1 hr 11 min
  • Gunnlaugur Jónsson
    Gunnlaugur Jónsson kom ungur inn í gullaldarlið Skagans um miðjan 10. áratuginn og náði í skottið á þeirri ótrúlegu velgengni sem þar varði en gerði þetta síðan allt saman sjálfur sem fyrirliði Íslandsmeistara ÍA árið 2001 eftir ótrúlegan leik í lokaumferð. Gulli söðlaði einnig um á gamalsaldri og fór yfir til KR þar sem hann var strax gerður að fyrirliða en stemningin var súr í KR á þessum tíma og lítið um velgengni ef undan er þó skilinn bikarmeistartitill á hans síðasta tímabili. Mitt allra besta fólk á Akranesi einfaldlega verður að hlusta á þetta, helst koma þessu fyrir á sögusafni Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi ef það er kostur á því. Iðnaðarmaður liðsins kom ekki á óvart, Theódór Hervarsson the bad boy of weather var í öðru sæti.
    1 hr 16 min
  • Emil Hallfreðsson
    Emil Hallfreðsson á tæpa 150 leiki í Serie A, 70 landsleiki og hefur spilað með mörgum frábærum og athyglisverðum leikmönnum. Í rúmlega 70 mínútna spjalli fórum við yfir það helsta sem hefur drifið á daga hans á ferlinum og fórum yfir margar af þeim ótrúlegu kempum sem hann hefur deilt búningsklefa með á ferli sem spannar FH, Tottenham, Malmö, Lyn, Reggina, Barnsley, Hellas Verona, Udinese og Frosinone.
    Draumaliðið er sem fyrr í boði okkar manna í BYKO.
    1 hr 13 min
  • Ólafur Ingi Skúlason
    Árið 1993 varð Ólafur Ingi Skúlason markahæsti leikmaður Shellmótsins með 12 mörk en það er lægsti markafjöldi sem leikmaður hefur komist upp með í átt að gullskó á mótinu. Þetta varð því miður hápunktur Ólafs í markaskorun en þrátt fyrir það á hann virkilega vanmetinn feril í atvinnumennsku sem spannar 5 lönd í Evrópu (og Asíu landfræðilega séð) þar sem hann spilaði m.a. tvívegis í riðlakeppni Evrópudeildarinnar með frábærum leikmönnum ásamt því að vera fastamaður í íslenska landsliðshópnum.
    1 hr 33 min
  • Atli Viðar Björnsson
    Atli Viðar Björnsson er markahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild og sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir eitt og sama félagið. Hann er geggjaður pundit, var stórkostlegur striker en umfram allt þvílíkur toppmaður. Nútímasaga FH í máli og engum myndum en ferill Atla í Hafnafirði spannar 17 ár, sem er einmitt hans gamla treyjunúmer. Að sjálfsögðu var valinn iðnaðarmaður liðsins í boði okkar besta styrktaraðila og vina í BYKO eins og vanalega.
    Draumaliðið er framleitt í samstarfi við BYKO og Viftuna.
    1 hr 3 min
  • Hjörvar Hafliðason
    Besta Dengsa eftirherma landsins, Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, mætti og fór yfir knattspyrnuferil sinn í rúmlega klukkutímaspjalli í boði Viftunnar og Byko, þá sérstaklega skrúfudeildar Byko út á Granda. Saga Hjörvars í boltanum með HK, Val og Breiðablik ásamt stuttum ævintýraferðum til Karlsruher og Stoke City hefur sjaldan litið dagsins ljós en hann var á sínum tíma einn efnilegasti markmaður landsins.
    1 hr 8 min
  • Guðni Bergsson
    Einn besti leikmaður Íslands fyrr og síðar, Guðni Bergsson, samþykkti ferðatilhögun Draumaliðsins og mætti í þáttinn og opnaði sig um bestu leikmenn sem hann hefur spilað með.
    Draumaliðið er í boði BYKO, sérstaklega BYKO út á Granda sem hefur aldrei brugðist liðsmönnum Draumaliðsins.
    47 min
  • Sólmundur Hólm Sólmundarson
    Saga Hólmarans í knattspyrnunni er saga brostinna drauma en einnig saga upprisu. Sóli sagði okkur frá áföllum sem hann lenti í snemma á ferlinum og hvernig hann reif sig upp í það að verða einn afkastamesti spilandi þjálfari í sögu árgangamóts Þróttar.
    52 min
  • Sigurvin Ólafsson
    Sigurvin Ólafsson varð Íslandsmeistari 5 sinnum, einu sinni bikarmeistari og fór tvisvar upp úr 2. deildinni á mögnuðum ferli. Hann valdi Draumaliðið sitt sem að var mikill hausverkur eftir veru hjá m.a. gullaldarliðum ÍBV, KR og FH.
    1 hr 11 min

About Draumaliðið

From the publisher's feed

Heimavöllur íslenskrar knattspyrnusagnfræði https://www.facebook.com/Draumali%C3%B0i%C3%B0-104064991157227/?modal=admin_todo_tour

Best of Draumaliðið

Ranked by our users in the last 21 days

  1. Number 1: Svona var sumarið 1998
    2 hr 26 min
  2. Number 2: Svona var sumarið 1997
    2 hr 32 min
  3. Number 3: Svona var sumarið 1996
    2 hr 18 min

More shows like Draumaliðið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Handkastið by Handkastið

Handkastið

11 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

1 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

7 Listeners

Tveggja Turna Tal by Tveggja Turnatal

Tveggja Turna Tal

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners