Með gat á hjartanu í laginu eins og Guð er nýtt íslenskt heimildarverk eftir Jón Atla Jónsson um óhugnalegt ofbeldi sem margir nemendur Landakotsskóla voru beittir frá árinu 1962 alveg fram til 1998.Verkið er á vegum útvarpsleikhúss RÚV en ákveðið var að taka það upp á Nýja sviði Borgarleikhússins fyrir framan áhorfendur í kvöld klukkan 20:00. Leikstjóri verksins, Egill Heiðar Anton Pálsson, segir vandasamt að koma verki eins og þessu á koppinn, en það er bæði byggt á rannsóknarskýrslu kaþólsku kirkjunnar frá 2012 og viðtölum leikskáldsins við þolendur.