Spegillinn

Eldsumbrot á Reykjanesskaga, vargöld í Ekvador og þróunarsamvinna Íslands og Malaví


Listen Later

Jarðeðlisfræðingar Veðurstofunnar telja líklegt að kvika hlaupi úr Svartsengi á næstu dögum. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Kristínu Jónsdóttur deildarstjóra á Veðurstofunni oum stöðuna þar syðra, viðvarandi landris frá síðasta gosi, 18. desember, kvikuhólf, kvikugang og kvikuflæði, myndun sigdals og ris lands meðfram börmum hans, aðferðir við mælingar á kviku og mat á goslíkum og fleira.
Neyðarástand er í Ekvador og her landsins hefur verið fyrirskipað að ráðast gegn glæpahópum sem ógna öryggi almennra borgara og stunda umfangsmikinn útflutning fíkniefna og eiturlyfja til Norður-Ameríku og Evrópu. Fólk treystir sér vart út fyrir hússins dyr vegna vargaldarinnar og óttast um líf sitt í hvert skipti sem það neyðist til að fara á milli staða, enda morðtíðni hvergi hærri í Rómönsku Ameríku en í þessu landi, sem um árabil var talið öruggasta landið i álfunni. Ásgeir Tómasson segir frá.
Malaví er landlukt land í suðvestanverðri Afríku. Þar hafa Íslendingar verið í þróunarsamvinnu við stjórnvöld og stofnanir í hartnær 35 ár og gengið vel. Inga Dóra Pétursdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Lilongve, höfuðstað Malaví, segir að fyrstu tíu árin hafi aðstoðin og samvinnan einkum snúist um fiskveiðar, en feiknarmikið stöðuvatn, Malavívatn, þekur um fjórðung af landinu. Síðan hafi Íslendingar áttað sig á því, segir Inga Dóra, að árangur aðstoðarinnar yrði aldrei mikill, ef ekki yrði unnið að félagslegri uppbyggingu og umbótum meðfram hinu. Nú hefur Ísland byggt fimmtán skóla og fjölda fæðingardeilda í landinu, aðallega í dreifðum og lítt aðgengilegum byggðum. Árangurinn sé bæði áþreifanlegur og mælanlegur; hundruð þúsunda ungmenna hafa lokið skólagöngu, sem annars hefðu ekki fengið mun minni ef nokkra menntun, og tíðni mæðra-, barna- og ungbarnadauða hefur minnkað um tugi prósenta í héraðinu sem starfsemin fer fram í.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners