Erla dregur upp fallega mynd af foreldrum sínum, og segir þeirra sögu, móðir hennar var heimavinnandi húsmóðir og pabbi hennar skipstjóri, og nefnir í því samhengi ást kærleika, rómantík og steiktar kleinur. Mamma hennar fékk alzheimer og hún segir frá því. Erla rekur enskuskóla sem hún stofnaði 1993. Á hverju námskeiði skólans stunda um 190 nemendur enskunám og 90% af þeim eru konur. Karlmenn eru að sjálfsögð velkomnir og er alltaf vel tekið á móti þeim. Meðalaldur nemenda er um 45 ár og flestir stunda enskunám til þess að bæta sína stöðu á vinnumarkaðnum og einnig til þess að vera færari um að nota enskuna í almennum samskiptum.