Spegillinn

ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða


Listen Later

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Björn Malmquist fréttamaður hitti Þorgerði síðdegis.
Frá því í maí í fyrra hefur Ísraelsher gert minnst níutíu og sjö árásir á svæði á Gaza, sem herinn hafði áður skilgreint sem svokölluð mannúðarsvæði og hvatt palestínskan almenning til að leita þar skjóls til að tryggja öryggi sitt og sinna. Þetta er niðurstaða rannsóknarteymis breska ríkisútvarpsins BBC, BBC Verify, sem hefur unnið að því undanfarna mánuði að sannreyna fregnir af slíkum árásum. Ævar Örn Jósepsson rýnir í skýrslu teymisins.
Í þremur tilfellum sem fjallað hefur verið um síðustu daga komust utankjörfundaratkvæði í alþingiskosningunum ekki til skila. Í Kópavogi urðu 25 utankjörfundaratkvæði innlyksa á bæjarskrifstofum og var ekki komið til talningar, í Norðausturkjördæmi fékk yfirkjörstjórn kassa með atkvæðum 11 dögum eftir að kosið var og ekki er vitað hve mörg þau voru, og tvö utankjörfundaratkvæði skiluðu sér ekki frá Seltjarnarnesi á talningarstað. Í kosningum er alltaf eitthvað um að utankjörfundaratkvæði berist ekki í tæka tíð - En er hægt að horfa til einhverra sérstakra kringumstæðna og telja atkvæði sem koma of seint? Anna Kristín Jónsdóttir ræddi þetta við Bergþóru Sigmundsdóttur lögfræðing og stjórnmálafræðing, sem sá lengi um utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá sýslumanni.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8

4.8

5 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

480 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

128 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

19 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

25 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

11 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

4 Listeners