Spegillinn

Fasteignamat 2024, ríkissáttasemjari hættir og hærri bílprófsaldur


Listen Later

Spegillinn 31. maí 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Mark Eldred.
Aðalsteinn Leifsson er hættur sem ríkissáttasemjari. Ástráður Haraldsson skipaður tímabundið hans stað.
Fasteignamat íbúðarhúsnæðis hækkar mest í Skagabyggð og í Reykhólahreppi, það er um tæplega 44%. Að meðaltali er hækkun fasteignamats tæp tólf prósent. Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans segir horft til nýs fasteignamats í bankanum strax á morgun, til dæmis þegar kemur að endurfjármögnun lána.
Heiða Björg Hilmisdóttir. Formaður Sambands sveitarfélaga segir báða deilendur verða að gefa eftir í kjaradeilunni við BSRB. Ekki komi til greina að samningar nái lengra aftur en til 1. apríl.
Eigendur bandaríska lyfjafyrirtækisins Purdue Pharma, sem setti oxycontin á markað, hafa samið um friðhelgi frá lögsóknum í tengslum við ópíóíðafaraldur en greiða í staðinn sex milljarða dollara næstu árin. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Mikið hefur borið á því að netsvindlarar sendi tölvupóst undir yfirskini lögreglu eða dómsmálaráðuneytisins til að reyna að hafa af fólki fé. Þar stendur að verið sé að rannsaka viðkomandi í tengslum við barnaklám eða barnaníð. Ísak Regal tók saman.
ÍBV og Haukar útkljá það í oddaleik í kvöld hvort liðið hampar Íslandsmeistaratitili í handbolta. Edda Sif Pálsdóttir ræddi við stuðningsmennina Tryggva Rafnsson (ÍBV) og Jóhann Ólaf Sveinbjarnason (Haukar).
----------------
Aðalsteinn Leifsson segist hafa verið vakinn og sofinn í embætti ríkissáttasemjara og tímabært að hætta og snúa sér að öðru. Átök og dómsmál í tengslum við deildu Eflingar og SA í vetur hafi e.kki haft áhrif ákvörðun hans.. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hann.
Lilja Björk Einarsdóttir segir að hraðar vaxtahækkanir og staða lántakenda sé áhyggjuefni en vanskil einstaklinga hafi ekki aukist. Stígur Helgason ræddi við Lilju. Anna Kristín Jónsdóttir tók saman.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að almenn ökuréttindi á EES-svæðinu verði bundin við 18 ára aldur. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra telur ekki ástæðu til að hverfa frá því að bílprófið geti fólk fengið 17 ára hér. Björn Malmquist sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

26 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners