Þrír ráðherrar í ríkisstjórninni hafa greinst með COVID-19. Forsætisráðherra hvetur fólk til að fara gætilega, þó að gögn bendi til þess að nýja omikron afbrigðið sé vægara en hin fyrri.
Nýtt hundrað herbergja sóttvarnahús verður opnað á höfuðborgarsvæðinu morgun.
Skýrsla frá Landsneti sýnir að Vatnsfjarðarvirkjun og hringtenging á flutningskerfi myndu stórbæta afhendingaröryggi á Vestfjörðum.
Lengri umfjallanir:
Ferðaþjónustan hefur tekið hægt við sér, bæði hér á landi og á heimsvísu. Óvissa ríkir um ferðaárið 2022. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur, forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, og Kristján Sigurjónsson, ritstjóra vefsins túrista.is, um stöðu og horfur í ferðaþjónustu hér og í heiminum öllum.
Ríflega sjö þúsund kærur bárust til yfirvalda í Svíþjóð í fyrra vegna meintra brota lögreglumanna í starfi. Afar sjaldgæft er að þessi mál leiði til ákæru, hvað þá sakfellingar. Kári Gylfason, fréttaritari Spegilsins í Gautaborg í Svíþjóð fjallar um málið.