Mennirnir fimm sem eru í haldi lögreglu í tengslum við umfangsmikla rannsókn á fíkniefnalagabrotum og peningaþvætti eru allir íslenskir. Lögregla hefur framkvæmt húsleit víða síðustu daga vegna málsins.
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins kveðst þess fullviss að aðildarþjóðirnar eigi eftir að fallast á inngöngu Finna og Svía. Full ástæða sé þó til að taka mark á skilyrðum Tyrkja fyrir jáyrði þeirra.
Ásgeir Tómasson sagði frá.
Ráðherrar Vinstri grænna vilja endurskoða stöðu sumra einstaklinga sem senda á úr landi til Grikklands. Félagsmálaráðherra segir að börn séu þar í forgangi. Pétur Magnússon tók saman.
Hlutfallslega vantar flest starfsfólk í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hér á landi, að því er fram kemur í nýrri Hagsjá Landsbankans. Formaður Sambands iðnfélaga segir þörf á átaki í menntakerfinu svo fleiri geti menntað sig í iðngreinum. Ólöf Erlendsdóttir talaði við Hilmar Harðarsson.
--------------------------------
Eru húsin okkar nógu sterk til að þola jarðskjálfta upp á 6,5 svo nálægt höfuðborgarsvæðinu? Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins og burðarþolsverkfræðingur segir að alla jafna ættu hús á höfuðborgarsvæðinu að geta staðið slíkan skjálfta af sér. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við hann.
Dauðadómum og aftökum fjölgaði um fimmtung í heiminum í fyrra samanborið við 2020. 579 aftökur voru skráðar. Þrjú lönd skera sig úr Íran, Sádi-Arabía og Egyptaland. Kristján Sigurjónsson talaði við Jón Viðar Matthíasson um málið.