Spegillinn

Finnar komnir í NATO, Trump ákærður og riðusmit er reiðarslag


Listen Later

Spegillinn 4. apríl 2023. Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Markús Hjaltason. Stjórn útsendingar Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
Stór og sögulegur dagur segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra um Atlantshafsbandalagsaðild Finna; ekki síst fyrir Norðurlandasamstarfið. Aðildin er Tobiasi Billström utanríkisráðherra Svía fagnaðarefni, hann segir ekkert standa í vegi þess að Tyrkir samþykki inngöngu Svíþjóðar líka.
Riðusmitið sem greindist á Bergstöðum í Miðfirði í gær er fertugasta og fimmta riðutilfellið frá aldamótum. . Mikið högg segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri í Húnaþingi vestra.
Bandaríkin ætla að útvega Úkraínu vopn fyrir tvo komma sex milljarða Bandaríkjadala. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir sagði frá.
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verður senn birt ákæra fyrir dómstól í New York. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrrverandi forseti landsins er ákærður. Á leiðinni í dómshúsið sagði hann málið óraunverulegt.
Sorphaugurinn á Glerárdal getur aðeins framleitt metan í sex ár í viðbót. Það er töluvert minna en búist var við í upphafi, enda var áætlanagerð byggð á veikum grunni að sögn Sunnu Guðmundsdóttur verkefnastjóra umhverfis- og loftslagsmála hjá Norðurorku. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við hana
---------------------
Norðurlandasamstarfið styrkist við inngöngu Finna í Atlantshafsbandalagið að mati Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra. Björn Malmquist talaði við hana í Bruxelles í höfðuðstöðvum NATO.
Sögulegir atburðir eru að gerast í Bandaríkjunum á þessari stundu. Donald Trump mætir fyrir dómara á Manhattan í New York þar sem honum verður birt ákæra, fyrstum sitjandi eða fyrrverandi forseta landsins. Ásgeir Tómasson tók saman. Eric Adams borgarstjóri New York borgar hvatti fólk til að sýna stillingu. Trump segir dómsmálið sprottið af ofsóknum pólitískra andstæðinga sinna.
Enn og aftur veldur riða búsifjum í sveitum landsins. Í gær var staðfest riðusmit á bænum Bergsstöðum í Miðfirði í Vestur Húnavatnssýslu. Lóga þarf um 700 fjár á einu afurðahæsta sauðfjárbúi landsins. Höggið er þungt fyrir bændur á bænum og í sveitum landsins. Þó er vonast til að takist að uppræta sjúkdóminn með erfðaframförum. Bjarni Rúnarsson tók saman og ræddi við Evu Hauksdóttur, líffræðing á Keldum um riðu. Heyrist líka í Sigurborgu Daðadóttur, yfirdýralækni. Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður ræddi einnig við Sigríði Ólafsdóttur, bónda í Víðidalstungu og sveitarstjórnarmann í Húnaþingi vestra.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

24 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

28 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

7 Listeners