Spegillinn 18.6.2019
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Samkomulag um afgreiðslu mála á Alþingi og þinglok er í höfn. Samið er um að fresta þriðja orkupakkanum þar til í lok ágúst og fresta gildistöku frumvarps um innflutning á fersku kjöti. Rætt við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins
Ef kviknar í á Vesturlandi má búast við að eldurinn breiðist hratt út þar sem áfram er spáð þurrki og norðanstrekkingi. Þetta segir veðurfræðingur sem brýnir fyrir fólki að fara gætilega. Rætt við Pálma Þór Sævarsson svæðisstjóra Vegagerðarinnar
Sérsveit ríkislögreglustjóra og sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir út þegar vart varð við torkennilegan hlut við gegnumlýsingu í farangursleit á Keflavíkurflugvelli. Við nánari skoðun reyndist hann vera eftirlíking af Fabérge-eggi.
Donald Trump Bandaríkjaforseti útilokar ekki stríð við Íran, einkum ef stjórnvöld þar hefja þróun kjarnavopna. Hann gerði lítið úr árásum á tvö olíuflutningaskip á Ómanflóa í síðustu viku í viðtali við tímaritið Time í dag.
Mikil eftirvænting er fyrir komu tveggja mjaldra til Vestmannaeyja á morgun.
Starfshópur um endurskoðun kosningalaga leggur til að komið verði á fót nýrri kosningastofnun til að hafa umsjón með framkvæmd kosninga og verkefnum í tengslum við þær.
Boris Johnson fékk aftur flest atkvæði þingmanna Íhaldsflokksins, sem kjósa sér nýjan formann á næstunni. Frambjóðendum fækkaði um einn eftir atkvæðagreiðslu dagsins og þeir eru nú fimm. Sigrún Davíðsdóttir, segir frá
Það þarf að stokka upp hlutverk fjallkonunnar og leyfa henni að velja sér ljóð. Þetta er mat kynjafræðings sem fagnar því að í gær hafi kona sem ekki er hvít farið með hlutverkið. Arnhildur Hálfdánardóttir tók saman og ræddi við Guðnýju Gústafsdóttur, kynjafræðing.
Úrslitakeppni heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta stendur nú sem hæst yfir í Frakklandi og sennilega hefur keppninni aldrei áður verið sinnt jafn vel af fjölmiðlum á alþjóðavísu. Kvennaboltinn hér á landi og erlendis á þó enn langt í land með að njóta jafnréttis á við karlaboltann þegar kemur að aðstöðu, peningum og viðhorfi þeirra sem stjórna í knattspyrnuhreyfingunni. Kristján Sigurjónsson ræddi við Eddu Garðarsdóttur, margreynd landsliðskona í fótbolta og þjálfari, og Kristján Guðmundsson knattspyrnuþjálfara. Kristján hefur um árabil þjálfað meistaraflokkslið karla í efstu deild víða um land, en þjálfar nú í fyrsta sinn kvennalið í efstu deild.