Spegillinn

Fjöldagröf í Izyum, íslenskukennsla fyrir innflytjendur og psylocibin


Listen Later

Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Meðal um 500 líka, sem fundist hafa í fjöldagröfum við úkraínsku borgina Izyum, eru líkamsleifar fólks sem grafið var með hendur bundnar fyrir aftan bak og jafnvel með snöru um hálsinn. Oddur Þórðarson sagði frá.
Svo gæti farið að opna þurfi fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn ef ekki finnst húsnæði handa þeim öllum. Aðgerðastjóri segir róið öllum árum að því að koma í veg fyrir slíka stöðu. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir talaði við Gylfa Þór Þorsteinsson.
16 sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á fíkniefnum í gegnum flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að efla þurfi eftirlit með fíkniefnainnflutningi til muna. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Úlfar Lúðvíksson.
Ferðaþjónusta í Grímsey býr við óvissu vegna útboðs á rekstri ferjunnar sem gengur milli lands og eyjar. Ekki er hægt að bóka ferðir lengra en fram í apríl. Amanda Guðrún Bjarnadóttir talaði við G. Pétur Matthíasson.
-------------------------------------------------------------------------------------
Þörf er á fjölbreyttum lausnum til að efla íslenskukennslu fyrir útlendinga, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann er ekki sannfærður um ágæti þess að setja íslenskukennslu á vinnutíma inn í kjarasamninga heldur treystir fremur á nýsköpun og segir máltækni tilvalinn vettvang fyrir frumkvöðla. Það sé verkefni alls samfélagsins að tryggja að fólk sem flytur til landsins geti aðlagast samfélaginu. Alexander Kristjánsson talaði við Halldór Benjamín Þorbergsson.
Psilocybin, virka efnið í ofskynjunarsveppum, gæti staðið fólki með meðferðarþrátt þunglyndi til boða innan örfárra ára. Þetta segir prófessor í geðlækningum. Fjöldi rannsókna gefur tilefni til að binda vonir við virkni þess gegn meðferðarþráu þunglyndi. Það er þunglyndi sem svarar illa meðferð. Talið er að 15-30 prósent þeirra sem glíma við þunglyndi svari illa meðferð. Hafdís Helga Helgadóttir tók saman og ræddi við Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlækningum, og Árný Jóhannesdóttur, sérnámslæknir í geðlækningum,
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners