Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #25 – Prakkari, veiðimaður og flugmaður – Ásgeir Guðmundsson
    Ásgeir Guðmundsson flugmaður segir hér frá litríkum ferli sínum í fluginu og ýmsum prakkarastrikum. Ásgeir hefur mætt áföllum af æðruleysi, er lífsglaður og þekktur fyrir alls konar uppátæki og sögur. Hann var flugstjóri hjá Cargolux þegar þegar hann lenti í alvarlegu flugslysi ásamt vini sínum á lítilli einkaflugvél á Austurlandi í júlí árið 2009. Þá breyttist líf hans á svipstundu. Ferlinum sem atvinnuflugmaður lauk og hann missti góðan vin sem var með honum í vélinni. Ásgeir segir hér frá slysinu og þeim verkefnum sem hann hefur glímt við eftir þessa erfiðu lífsreynslu, en ekki hvað síst frá skemmtilegum ferli og fólki í fluginu.
    50 min
  • #24 – Flugöryggi og varavellirnir – Ingvar Tryggvason form. ÖFÍA
    Ingvar Tryggvason formaður Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og flugstjóri ræðir hér um ýmis öryggismál í fluginu. Ingvar hefur á liðnum árum verið ötull talsmaður flugöryggis í tengslum við starf sitt. Nú er vakning í uppbyggingu og viðhaldi innviða eins og helstu flugvalla landsins, sem m.a. þjóna sem varaflugvellir fyrir flugumferð. Það má samt alltaf gera betur varðandi öryggisbúnað á flugvöllum og það er líka tilfellið með fullkomnasta völl landsins Keflavíkurflugvöll sem Ingvar fer m.a. yfir í þættinum.
    44 min
  • #23 – Forstjóri Icelandair í 10 ár - Björgólfur Jóhannsson
    Björgólfur Jóhannsson var nýbyrjaður sem forstjóri Icelandair Group þegar efnhagshrunið varð haustið 2008. Hann sigldi félaginu í gegnum erfiða tíma í kjölfar hrunsins og í mörg ár þar á eftir stýrði hann Icelandair á mesta blómaskeiði þess frá upphafi. Björgólfur segir hér frá þessum merkilega tíma í flugsögunni, frá samkeppninni við WOW og fleiri flugfélög, samskiptum við stéttarfélögin, fjárfestingu í flugrekstri á Grænhöfðaeyjum sem hann hefur enn trú á og margt fleira.
    1 hr 27 min
  • #22 – Flugmaður í nær 60 ár - Hallgrímur Jónsson, Moni
    Hallgrímur Jónsson flugmaður og fyrrverandi yfirflugstjóri hjá Icelandair segir frá viðburðum og upplifunum á ótrúlega löngum ferli í fluginu. Hallgrímur, eða Moni eins og hann er kallaður, hóf ferilinn 1960 og er enn að. Eftir 42 ára starf sem atvinnuflugmaður í farþegaflugi hefur hann unnið við þjálfanir og tekið á annað þúsund flugnema í próf á öllum stigum flugnámsins. Hann er enn starfandi og nú á mælingaflugvél fyrir ISAVIA og er ötull einkaflugmaður á mörgum af sömu flugvélategundunum og hann hóf ferilinn á 1960.
    1 hr 4 min
  • #21 - Unga fólkið, flugnámið og kreppan – Hildur og Leó Freyr
    Rætt er við tvo fulltrúa úr hópi ungra flugmanna á Íslandi.
    Hildur Þórisdóttir Kjærnested útskrifaðist með skírteini atvinnuflugmanns í árslok 2019 og fékk svo kreppuna í fangið. Hún telur að sumir muni gefa flugið upp á bátinn, en sjálf sér hún ekki fyrir sér starfsframa í neinu öðru.
    Leó Freyr Halldórsson gegnir stöðu Flight operations manager hjá Flugakademíu Íslands þar sem tugir sitja nú í bóklegu atvinnuflugmannsnámi og um 300 manns sinna verklegu námi á ýmsum stigum. Leó Freyr er sjálfur í flugnámi samhliða vinnunni og segir frá flugnáminu og þeim leiðum sem hægt er að fara til að láta drauminn rætast og læra fjúga.
    59 min
  • #20 - Í forystusveit fyrir flugmálum Íslands – Leifur Magnússon
    Leifur Magnússon segir hér frá þeim merkilega tíma þegar hann starfaði við hlið Agnars Kofoed-Hansen þá flugmálastjóra Íslands á sjöunda og áttunda áratugnum og barist var fyrir hagsmunum Íslands á alþjóðlegum vettvangi. Leifur starfaði við flugið með einum eða öðrum hætti um áratuga skeið og var árið 1979 heiðraður með riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf á sviði flugmála. Auk þess að vera einkaflugmaður og afreksmaður í svifflugi þá leiddi Leifur þróun flugflota Flugleiða þegar sú stóra ákvörðun var tekin að byrja með tveggja hreyfla þotur í áætlunarflugi til og frá Íslandi. Um ágæti þess var deilt á sínum tíma og á níunda áratugnum var jafnvel umræða um að hætta alfarið flugi til Ameríku.
    45 min
  • #19 – Ábyrgð flugvirkja er við farþegana – Guðmundur form. Flugvirkjafélagsins
    Guðmundur Úlfar Jónsson formaður Flugvirkjafélags Íslands segir frá störfum flugvirkja og stöðunni í þessari iðngrein, sem Íslendingar hafa lagt fyrir sig allt frá því að fyrstu flugvélarnar flugu hérlendis.
    Hátt í 500 flugvirkjar í Flugvirkjafélagi Íslands eru starfandi í dag þrátt fyrir kreppuna í fluginu. Ásókn í flugvirkjun er góð og vinnan fjölbreytt og skemmtileg að sögn Guðmundar. Störfin eru oft vandasöm og flugvirkjar taka alvarlega þá þungu ábyrgð sem þeir bera gagnvart öryggi flugfarþega.
    42 min
  • #18 - Flugsveit LHG flýgur í öllum veðrum – Sigurður yfirflugstjóri
    Sigurður Heiðar Wiium yfirflugstjóri á björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar segir hér frá öflugri flugstarfsemi LHG og ýmsum erfiðum björgunarferðum við ómögulegar aðstæður, þar sem gæða þjálfun og útsjónarsemi þarf til að allt gangi upp. Flugsveit LHG fer af stað í hvaða veðri sem er þegar kallið kemur, að nóttu sem degi. Sigurður segir að gera megi betur í innviðum fyrir björgunarþyrlurnar og setja upp fleiri veðurstöðvar og sérstök þyrluaðflug. Sigurður rifjar einnig upp þegar hann nauðlenti Dauphin þyrlu á sjónum í Straumsvík árið 2007.
    58 min
  • #17 – Lifði flugskeytaárás og brotlendingu á 45 ára ferli – Harald Snæhólm flugstjóri
    Harald Snæhólm flugstjóri hefur upplifað ótrúlega hluti á um 45 ára löngum ferli sem flugmaður. Hann hóf atvinnuflugmannsferil á sjóflugvélum í Noregi og lauk ferlinum á Boeing 767 breiðþotu hjá Icelandair. Á einhvern óskiljanlegan hátt slapp hann ómeiddur frá flugskeytaárás þegar hann sinnti hjálparflugi til Biafra og hann var einn þeirra sem komst lífs af úr brotlendingu DC-8 þotu Loftleiða á Sri Lanka árið 1978. Harald segir hér skemmtilega frá sjálfum sér og litríkum ferli í fluginu.
    42 min
  • #16 - Flugfreyjan. Starfið, ævintýrin, glamúrinn og álagið með Dillý flugfreyju
    Sigurlaug Halldórsdóttir flugfreyja eða Dillý eins og hún er kölluð, hefur starfað sem flugfreyja í nær 40 ár. Hér segir hún frá starfinu, ferlinum, ferðalögum og ævintýrum. Sjálf segist alla tíð hafa ætlað í flugið, en móðir hennar var flugfreyja um borð í Hrímfaxa, Viscount flugvél Flugfélags Íslands, sem fórst við Osló 1963 þegar Dillý var aðeins 3 ára. Stórmerkileg frásögn einstaklega drífandi konu sem hefur gert flugið að sínu ævistarfi.
    1 hr 2 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners