Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #45 - Erfiður tími að baki, nýjar áskoranir en bjart framundan – Þ. Haukur Reynisson
    Rætt er við Þórhall Hauk Reynisson flugrekstrarstjóra Icelandair um gríðarlegar áskoranir í rekstrinum síðustu árin og um stöðu félagsins í dag og horfurnar framundan. Haukur eins og hann er kallaður rifjar einnig upp áhugaverða tíma á ferlinum eins og þegar hann hóf sinn feril sem flugmaður hjá Flugfélaginu Erni á Ísafirði og sinnti þar fjölbreyttum verkefnum, allt frá sjúkra- og póstflugi um Vestfirði til hjálparflugs í Afríku.
    1 hr 13 min
  • #44 - Frelsið í fisfluginu heillar – Jónas Sturla Sverrisson
    Jónas Sturla Sverrisson segir hér frá starfsemi Fisfélags Reykjavíkur og gríðarlegum uppgangi í greininni. Sífellt fleiri sækja í fisflugið frekar en einkaflug af ýmsum ástæðum og njóta þannig frelsisins að fljúga um landið. Jónas hefur langa reynslu af fisflugi og fræðir hlustendur m.a. um reglur sem gilda um þessa grein flugsins og um baráttu fyrir tilvist félagsins m.a. innan þjóðgarða.
    45 min
  • #43 – Lifði mannskætt flugslys en aldrei hræddur – Páll Stefánsson
    Rætt er við Pál Stefánsson fyrrverandi flugstjóra um langan og merkilegan feril hans í fluginu og um aðkomu hans að námskeiðshaldi fyrir fólk með flughræðslu sem hann hefur unnið við í um aldarfjórðung. Páll lifði af flugslysið sem varð á Mykinesi í Færeyjum árið 1970, þá sem ungur atvinnuflugmaður. Þrátt fyrir slysið hélt hann ótrauður áfram og hefur í gegnum bæði blómlega og róstursama tíma í fluginu, átt yfir fjörutíu ára farsælan feril sem atvinnuflugmaður.
    1 hr 18 min
  • #42 – Flughræðslan og ráð við henni – Álfheiður Steinþórsdóttir
    Rætt er við Áfheiði Steinþórsdóttur sálfræðing sem hefur lengi aðstoðað fólk við að vinna bug á flughræðslu. Hún segir mikinn árangur hafa náðst á námskeiðum sem haldin hafa verið á vegum Icelandair á fyrir þá sem vilja læra njóta þess að fljúga. Mörg hundruð manns hafa sótt slík námskeið á undanförnum árum. Rætt er við Álfheiði um hvað veldur kvíða og flughræðslu og hvernig megi vinna bug á hræðslunni.
    28 min
  • #41 – NICEAIR – Til útlanda beint frá AEY - Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
    Rætt er við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson flugmann og athafnamann á Akureyri um hið nýstofnaða félag NiceAir. Þorvaldur Lúðvík hefur verið að fjúga allt sitt líf og fengið útrás fyrir því áhugamáli með ýmsu móti. Nú leiðir hann nýtt fyrirtæki sem stofnað er til að standa í fyrsta sinn að reglubundnu áætlunarflugi milli Akureyrar og annarra landa. Þorvaldur Lúðvík segir frá undirbúningi og viðskiptamódeli nýja félagsins og ræðir framtíðarplönin, ásamt ýmsu fleiru sem hann hefur fengist við á lífsleiðinni.
    1 hr 3 min
  • #40 – Flugumferðarstjórn og ör tækniþróun – Guðmundur Karl Einarsson
    Sérhæft starf flugumferðarstjóra er til umfjöllunar í þessum þætti þar sem rætt er við Guðmund Karl Einarsson vaktstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Hann segir hér frá starfi flugumferðarstjóra sem hann hefur sinnt í tæp 20 ár og veitir hlustendum innsýn í vinnuna í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Guðmundur hefur tekið virkan þátt í margs konar þróunarvinnu á síðustu árum og þekkir því vel til þeirra öru tæknibreytinga sem hafa orðið á sviði flugumferðarstjórnar á síðustu árum og hvaða breytingar eru helst í vændum. Um 150 flugumferðarstjórar starfa hérlendis og sinna einu stærsta flugsjórnarsvæði heimsins. Viðtalið var tekið í janúar 2022.
    58 min
  • #39 – Sóknarhugur og uppbygging Icelandair á ný – Jens Bjarnason
    Rætt er við Jens Bjarnason framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair um uppbyggingu félagsins sem nú stendur yfir. Jens segir félagið í sóknarhug og menn vilji vanda sig við að endurreisa og stækka fyrirtækið. Hann hefur verið viðloðandi flugrekstur áratugum saman og gengt ýmsum störfum fyrir Icelandair og fleiri á sínum ferli. Jens er doktor í verkfræði, með óbilandi áhuga á flugi og er bjartsýnn á að umsvif Icelandair muni vaxa hratt þegar kófinu slotar. Tækifærin blasi við.
    59 min
  • #38 – PLAY – með lægra verð á krefjandi markað - Birgir Jónsson
    Birgir Jónsson forstjóri flugfélagsins Play segir hér frá stofnun félagsins og sinni aðkomu að hinu nýja íslenska lággjaldaflugfélagi. Hann trúir því að félagið geti vel þrifist á krefjandi flugmarkaði ólíkt forverum sínum, ef rétt er staðið að málum. Birgir ræðir hér um stöðu félagsins og horfurnar framundan, ýmis deilumál sem komið hafa upp síðustu mánuði, hrekur ýmsar kjaftasögur úr bransanum og segir skemmtilega frá ferli sínum, bæði sem trommari og framámaður í viðskiptalífi hér heima og erlendis.
    1 hr 13 min
  • #37 – ÍS-lendingar á Suðurskautslandinu – leigflug á mörgæsaslóðum
    Rætt er við August Håkansson flugstjóra og verkefnastjóra, Rósu Björg Gunnarsdóttur flugfreyju og Arnar Þór Jóhannsson flugvirkja um leiguflug sem þau hafa verið að sinna til Suðurskautslandsins. Um er að ræða leiguflug þar sem flogið er frá Punta Arenas í Chile og lent á flugbraut sem er nokkur hundruð metra þykk íshella á Suðurskautslandinu. Flugið á lítið skylt við venjulegt áætlunarflug og hefur krafist mikils undirbúnings. Árni Hermannsson framkvæmdastjóri Loftleiða segir einnig stuttlega frá tilurð þessa verkefnis.
    1 hr 1 min
  • #36 – Regluverkið eitt skilar ekki auknu flugöryggi – Kári Guðbjörnsson
    Rætt er við Kára Guðbjörnsson flugstjóra, flugumferðarstjóra og prófdómara til áratuga, en hann hefur m.a. getið sér gott orð fyrir námskeið og öryggisfundi fyrir einkaflugmenn og flugklúbba á síðustu árum og hefur talað fyrir aukinni samvinnu milli grasrótar flugsins og flugmálayfirvalda. Kári er hafstjór af fróðleik um flugmál og er ófeiminn við að gagnrýna ýmislegt sem hann telur að betur mætti fara bæði í einkaflugi og atvinnuflugi. Kári er búsettur í Þýskalandi og þátturinn var tekinn upp sumarið 2021 þegar hann var á Íslandi.
    1 hr 33 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners