Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #55 - Fyrsta flugkona Íslands – ruddi brautina en fékk ekki tækifæri - Erna Hjaltalín
    Fjallað er um Ernu Hjaltalín fyrstu flugkonu Íslands sem talin er ein merkasta kona íslenskrar flugsögu. Hún var önnur af sínum kynsystrum til að taka einliðaflugpróf, en fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf, atvinnuflugmannspróf og til að fá réttindi loftsiglingafræðings. Skyggnst er í gamlar og takmarkaðar heimildir um Ernu frá uppvaxtarárum hennar á Siglufirði og hennar baráttu lýst í stuttu máli, ásamt því að heyra viðtalsbrot við Ernu úr safni Ríkisútvarpsins.
    Lesari með umsjónarmanni er María Kristjánsdóttir.
    26 min
  • #54 – Forstjóri og flugstjóri á umrótartímum; Arnarflug – Íslandsflug o.fl. – Gunnar Þorvaldsson
    Gunnar Þorvaldsson flugstjóri og fyrrum framkvæmdastjóri er gestur í þætti #54, en hann hefur haft aðkomu að óvenju mörgum flugfélögum á sínum langa ferli. Fyrst með stofnun Austurflugs á Egilsstöðum ásamt vini sínum Sigurði Aðalsteinssyni og í framhaldinu hjá Loftleiðum, Flugstöðinni h.f, Air Viking, Arnarflugi og Íslandsflugi. Gunnar tæpir hér á nokkrum atriðum á löngum og stórmerkilegum ferli og rifjar um skemmtilegar sögur.
    1 hr 16 min
  • #53 – Vertíð í þjálfun - metfjölgun flugáhafna Iceair – Guðmundur Tómas Sigurðsson
    Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson ábyrgðarmann þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair um vertíðina sem nú stendur yfir. Útlit er fyrir met í fjölda þeirra sem fara í þjálfun á þessu ári hjá félaginu og 3 flughermar í Hafnarfirði anna ekki þörfinni þegar mest lætur. Guðmundur Tómas segir hér frá áhugaverðri starfsemi í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði, áskorunum framundan og væntanlegri mönnunarþörf og hvernig félagið reynir að mæta henni.
    45 min
  • #52 – Andleg heilsa, peer support og áhrif covid – Jóhann Pétur Wium Magnússon
    Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing um andlega heilsu þeirra sem starfa við flugið og kröfur þar um. Aukin umræða og vitund um nauðsyn andlegrar hreysti hefur breytt miklu á allra síðustu árum og samhliða hefur reglum verið breytt til að skapa þeim sem glíma við andlega vanlíðan úrræði til að leita sér hjálpar. Fjallað er um m.a. „peer support programs“ og áhrif Covid faraldursins á andlega líðan. Jóhann Pétur hefur hlotið margvíslega viðurkenningar í sínu fagi og starfar í dag fyrir ICAO – Alþjóða flugmálastofnunina. Rætt er um þær reglur sem gilda í dag, hverjar breytingarnar hafa verið á allra síðustu árum og hvað er í farvatninu.
    56 min
  • #51 - ISAVIA, endurheimtin í KEF og vöxturinn framundan – Sveinbjörn Indriðason
    Sveinbjörn Indriðason forstjóri ISAVIA fer vítt yfir sviðið um fjölmörg og krefjandi verkefni félagsins. Reksturinn í Keflavík, stækkunaráform og þróun vallarins á næstu árum. Vel yfir 6 milljónir farþega fara um völlinn á þessu ári og í vetur munu fleiri flugfélög fljúga til Keflavíkur en nokkru sinni áður yfir vetrartímann. Sveinbjörn ræðir einnig ýmis atriði sem varða innanlandsflugvelli á Íslandi, varaflugvelli, stöðu Reykjavíkurflugvallar og flugleiðsöguþjónustunnar.
    1 hr 36 min
  • #50 – Svaðilfarir, erfiðleikar og átök í þyrlurekstri LHG – Benóný Ásgrímsson og Páll Halldórsson
    Rætt er við tvo af reynslumestu þyrluflugstjórum Íslands þá Benóný Ásgrímsson og Pál Halldórsson um þyrlurekstur Landhelgisgæslunnar. Báðir tóku þeir þátt í að endurskipuleggja allt starf þyrlusveitar gæslunnar frá grunni eftir mannskætt slys sem varð á TF-RÁN í Jökulfjörðum árið 1983. Benóný og Páll segja hér frá ýmsum erfiðleikum og átökum við að byggja upp þyrlurekstur LHG og frá sínum einstaka ferli í leitar- og björgunarflugi á Íslandi.
    1 hr
  • #49 - Ein ánægjulegasta endurminningin þegar hreyfillinn sprakk– Gunnar Arthursson
    Rætt er við Gunnar Arthursson flugstjóra sem lenti í frægri svaðilför á Fokker F-27 flugvél þegar annar hreyfillinn sprakk skömmu eftir flugtak frá Ísafjarðarflugvelli árið 1982. Gunnar segir frá þessu atviki og frá ýmsu áhugaverðu af sínum langa atvinnuflugmannsferli sem spannar yfir 40 ár. Hann upplifði m.a. ótrúlegar breytingar á vinnustað frá DC3 til Boeing 757/767, en Gunnar hætti störfum sem flugstjóri sökum aldurs árið 2004.
    1 hr 25 min
  • #48 – Icelandair í sterkri stöðu eftir krísuástand síðustu ára – Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um framtíðarplönin og viðsnúning í rekstri félagsins. Hann segir ótrúlegt afrek starfsfólksins að hafa komið félaginu á þann stað sem það er í dag á undraverðum tíma. Lausafjárstaða félagsins er sterk og uppbygging framundan eftir krísur síðustu árin. Rætt er um kjarasamninga framundan, flotamálin, innanlandsflugið og hvernig félaginu var forðað af bjargbrúninni árið 2020.
    57 min
  • #47 – Svefnheilsa og „Just Culture“ – Reykjavik Flight Safety Symposium
    Rætt er við dr. Erlu Björnsdóttur sálfræðing og sérfræðing í svefnrannsóknum og Ingvar Tryggvason flugstjóra og fyrrum formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Þau eru bæði fyrirlesarar á Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldið er í sjötta sinn í ár. Erla ræðir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan og árangur og Ingvar segir frá innleiðingu sanngirnismenningar eða „Just Culture“ í flugheiminum.
    36 min
  • #46 – Evidence Based Training umbyltir þjálfun flugáhafna – Davíð Ásgeirsson
    Rætt er við Davíð Ásgeirsson flugstjóra og eftirlitsmann hjá bresku flugmálastjórninni, en hann hefur á síðustu árum sérhæft sig í Evidence based training (EBT)eða hæfnimiðaðri þjálfun flugáhafna. Þar er um að ræða algjöra kúvendingu í allri nálgun og viðmiðum fyrir endurmenntun og síþjálfun flugmanna. Farið er aðeins yfir litríkan feril Davíðs í fluginu, þegar hann var m.a. hjá EasyJet og síðar WOW air og nú sérfræðistörf hans hjá bresku flugmálastjórninni.
    1 hr 9 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners