Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #75 – Þarfasti þjónninn - Þristurinn DC-3, 80 ára – 1. hluti.
    Samantekt um hina sögufrægu flugvél DC-3 á Íslandi í tilefni af 80 ára afmæli fyrstu vélar af þeirri gerð, sem nú er varðveitt á Flugsafni Íslands. Í þessum þætti er farið yfir atriði úr sögu Þristsins á Íslandi og birt eru viðtalsbrot úr kvikmyndinni Íslenskir atvinnuflugmenn við flugstjórana Snorra Snorrason, Henning Bjarnason og Geir Gíslason. Einnig er rætt við Sverri Þórólfsson flugstjóra um hans feril og einkum á DC-3 sem hann flaug mikið á sjöunda áratugnum og síðar í landgræðslufluginu.
    53 min
  • #74 – Lifandi saga flugsins varðveitt og kynnt - Flugsafn Íslands - Steinunn María Sveinsdóttir
    Rætt er við Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands. Flugsafnið hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og stór verkefni blasa við á næstunni, en safnið fagnar 25 ára afmæli í vor. Steinunn segir hér frá fjölmörgum áhugaverðum verkefnum til þessa og hvernig ætlunin er að þróa starf safnsins enn frekar í þá átt að ekki eingöngu að varðveita muni og sögu heldur einnig að opna heim flugsins fyrir þeim sem ekki þekkja. Hún segir mikinn velvilja gangavart Flugsafninu og þar fer Örninn hollvinafélagið einna fremst í flokki.
    Viðtalið var tekið upp á Flugsafni Íslands um borð í TF-SYN gömlu Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar.
    1 hr 6 min
  • #73 – Þyrluflugið í örum vexti - vannýtt tæki m.a. til sjúkraflutninga – Reynir Freyr Pétursson
    Reynir Freyr Pétursson þyrluflugstjóri og flugrekstrarstjóri HeliAir Iceland ræðir um stöðu þyrluflugs á Íslandi og tækifærin framundan. HeliAir Iceland er nýtt fyrirtæki sem sinnir margs konar spennandi verkefnum í að flytja bæði fólk og vörur fyrir innlenda og ekki síst erlenda kúnna. Reynir Freyr hefur áratuga reynslu af þyrluflugi hérlendis og fer m.a. yfir erfiða samkeppni á þessum markaði sem oft er ósanngjörn að hans mati. Rætt er um nám til þyrluflugs, atvinnuhorfur og fordóma sumra í garð þessa ferðamáta. Reynir segir einnig frá ýmsum skemmtilegum verkefnum sem á daga hans hefur drifið í að fljúga þyrlum vítt og breitt um landið.
    1 hr 25 min
  • #72 – Icelandair í góðri stöðu til sóknar, en breytinga þörf í KEF - Guðmundur Hafsteinsson
    Guðmundur Hafsteinsson stjórnarformaður Icelandair Group fer hér vítt og breitt yfir málefni Icelandair og áskoranir í rekstri félagsins. Aðalfundi Icelandair er nýlokið þar sem Guðmundur var endurkjörinn formaður stjórnar. Hann segir félagið mjög vel í stakk búið til að takast á við spennandi tíma framundan og grípa tækifærin sem gefast. Farið er yfir flotamálin, gengi félagsins á markaði og harða samkeppni á markaðnum og hvernig skiptistöðin í Keflavík nær ekki að anna umferðinni um völlinn. Guðmundur segir einni frá stórmerkilegum bakgrunni sínum m.a. í starfi hjá tæknirisunum Google og Apple.
    1 hr 19 min
  • #71 – Ágjöf en aldrei uppgjöf – Mýflug/Ernir, Sjúkraflugið o.fl. – Leifur Hallgrímsson
    Rætt er við Leif Hallgrímsson sem á einstaka sögu í flugrekstri á Íslandi. Hann stofnaði Mýflug árið 1985 til að sinna, útsýnis- leigu- og kennsluflugi frá flugvellinum í Reykjahlíð – í sinni heimasveit. Það hafa verið mikil tíðindi í rekstri Mýflugs síðustu misserin. Félagið keypti um þriðjungshlut í flugfélaginu Erni og um síðustu áramót missti Mýflug samning um sjúkraflug við ríkið, sem verið hefur meginstoðin í rekstri félagsins síðustu 18 árin.
    Leifur segir hér frá merkilegri sögu Mýflugs, hvernig kaupin á hlut í Erni komu til og áætlanir varðandi þessi tvö félög, ásamt ýmsu sem hann hefur gengið í gegnum á löngum ferli.
    Þátturinn var tekinn upp á veitinga- og gististaðnum Vogafjósi í Mývatnssveit 10. janúar 2024.
    1 hr 9 min
  • #70 – Icelandair aldrei stærra en 2023 – Airbus, ráðningar, cadettar og eldgos – Linda Gunnarsdóttir
    Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair segir hér frá met umsvifum félagsins á þessu ári og fyrirhugaðri stækkun. Boeing vélum verður fjölgað fyrir næsta sumar og þjálfun er að hefjast á Airbus á næstu vikum. Linda ræðir ráðningar á flugmönnum, cadet prógram og hvernig félagið reynir að takast á við ýmis krefjandi verkefni sem komið hafa upp á þessu ári.
    1 hr 13 min
  • #69 – Nautn að laga það sem var bilað – flugvirki og fallhlífarstökkvari – Hannes S. Thorarensen
    Rætt er við Hannes S. Thorarenssen flugvirkja sem unnið hefur fyrir fjölda íslenskra og erlendra flugfélaga í gegnum árin. Hann var í áratug bæði flugvirki og flugmaður á DC 3 í landgræðsluflugi og er enn að sinna viðhaldi á Þristinum þótt vélin sé nú eingöngu safngripur. Hannes segir hér frá sínum merkilega ferli í fluginu og einstakri sögu af því þegar hann stökk úr fallhlíf á Grænlandi til að útbúa þar lendingastað fyrir flugvélar.
    53 min
  • #68 RFA nýr flugskóli – þarf samstarf allra til að efla atvinnuflugskennslu – Hjörvar og Bragi
    Rætt er við flugmennina og feðgana Hjörvar Hans Bragason og Braga Sigþórsson sem nú reka Flugskóla Reykjavíkur (RFA.) Skólinn er nú sá eini sem kennir til atvinnuflugmannsréttinda hérlendis eftir að Flugakademía Keilis hætti rekstri. Þeir segja það alls ekki sjálfgefið að þessi rekstur gangi nema gott samstarf náist við flugfélögin, stjórnvöld og lánastofnanir. Rætt er um ýmis mál sem tengjast flugnáminu, samninginn við Keili, fjármögnun á flugnámi, cadet prógröm og fleira.
    Áhugavert og fræðandi spjall um stöðu flugnáms til atvinnuflugsréttinda á Íslandi í dag.
    51 min
  • #67 – PLAY í plús á Q3 – vetur nálgast og hægja á vexti - Birgir Jónsson
    Rætt er við Birgi Jónsson forstjóra Play í tilefni af árshlutauppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2023 þar sem félagið skilar í fyrsta sinn hagnaði eftir skatta. Flugfélagið Play hefur stækkað hratt, er með 10 flugvélar í rekstri og krefjandi vetur framundan þar sem spáð er taprekstri fyrir árið í heild. Farið er yfir stöðu félagsins og rýnt í nokkra þætti úr árshlutauppgjörinu. Þá er fjallað um brotthvarf flugmanna félagsins yfir til Icelandair og um gagnrýni á Play fyrir að hlýta ekki reglum íslensks vinnumarkaðar sem Birgir segir að standist enga skoðun.
    1 hr 7 min
  • #66 – Frábær Q3 og horfur góðar - basl í fraktinni – Bogi Nils Bogason
    Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair fer yfir stöðu félagsins eftir öflugt uppgjör 3. ársfjórðungs og horfurnar framundan. Icelandair skilaði yfir 11 milljörðum króna í hagnað eftir skatta á 3. ársfjórðungi og bókunarstaða í farþegafluginu er góð. Fraktstarfsemin gengur hins vegar illa og áskorun verður að snúa þeim rekstri á réttan kjöl. Þá blasa við ýmsar kostnaðarhækkanir og áskoranir í rekstrarumhverfinu auk þess sem innleiðing nýs Airbus flota er á döfinni á næstu misserum sem verður stórt verkefni.
    43 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners