Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #65 – Flugmannaskortur yfirvofandi? - The Mentour Pilot – Petter Hörnfeldt
    Rætt er við Petter Hörnfeldt sem heldur úti viðamikilli útgáfu á youtube til að kynna og fræða áhorfendur um flugmál. Petter var gestur á Reykjavik Flight Safety Symposium á vegum ÖFÍA þar sem hann fór yfir stöðuna og horfur framundan út frá flugmannsstarfinu. Hann telur yfirvofandi mikinn skort á flugmönnum á allra næstu árum og segir frá því hvernig hann telur að flugfélögin og skólar þurfi að mæta þeirri þörf. Hann segir einnig frá störfum sínum semThe Mentour pilot sem m.a. varð til því mikill skortur hafi verið á faglegu efni á netinu um flugmál.
    52 min
  • #64 – RFSS – Flugnám, fíkniefnaskimanir og kulnun – Högni Björn Ómarsson
    Rætt er við Högna Björn Ómarsson flugstjóra og ritara FÍA í tilefni af Reykjavík Flight Safety Symposium, ráðstefnu ÖFÍA sem haldin verður í sjöunda sinn nú október. Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða margir áhugaverðir fyrirlesarar sem fjalla munu um fjarturna, flugnám og flugkennslu, streitu og kulnun, fíkniefnaskimanir og losunarheimildir. Högni gerir hér lítillega grein fyrir fyrirlesurum og segir frá efni fundarins. Högni Björn segir einnig aðeins frá sínum ferli í fluginu, flugnámi í Skotlandi og ræðir m.a. breytingar á vinnuumhverfi flugmanna á síðustu árum, félagsstarfið í FÍA og fleiri mál.
    40 min
  • #63 – Loftlagsmál og orkuskipti lykilatriði í rekstri næstu árin – Heiða Njóla Guðbrandsdóttir
    Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur aðstoðarframkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair um umfang rekstrarins á nýliðnu sumri og áætlanir félagsins um vöxt á næsta ári. Heiða Njóla fer einnig yfir nýjustu tækni sem er að halda innreið sína í orkuskiptum í fluginu, einkum með notkun vetnis og sjálfbæru þotueldsneyti, sem gæti skipt sköpum í rekstri flugfélaga á næstu árum. Hún skýrir einnig fyrirliggjandi plön varðandi þróun ETS viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir í flugi, sem mun hafa mikil áhrif. Fræðandi og áhugavert spjall við forystukonu í flugrekstri.
    52 min
  • #62 – Flughátíð í Reykjavík 3. júní “23 – Listflugmenn, fólkið og flugvélarnar
    Samantekt frá flugdeginum á Reykjavíkurflugvelli 3. júní 2023. Rætt er við nokkra sem komu að skipulagningu og dagskrá hátíðarinnar m.a. listflugmennina Snorra Bjarnvin Jónsson og Luke Penner. Fjölmargir gestir nýttu tækifærið til að skoða gamlar og nýjar flugvélar, sjá ýmsan búnað sem tilheyrir flugvallarekstri og fræðast um leið um flugið, en þetta var í fyrsta sinn í 4 ár sem flugdagur er haldinn á Reykjavíkurflugvelli.
    Viðmælendur eru:
    Matthías Sveinbjörnsson, Dagbjartur Einarsson, Sigurjón Valsson, Arnar Emilsson, Gunnlaugur Rafn Björnsson, Jón Karl Snorrason, Helgi Þorsteinsson, Matthías Arngrímsson, Berglind Heiða Árnadóttir, Jóhann Óskar Borgþórson, Sif Björnsdóttir, Reynald Hinriksson, Snorri Bjarnvin Jónsson, Luke Penner, Jiri Prusa, Jónas Sturla Sverrisson, Linda Gunnarsdóttir, Ásmundur Guðnason, Garðar Sigurvaldason.
    Sýningagestir sem rætt er við í þættinum eru: Ólöf Októsdóttir og Jóhann Orri Einarsson, Katrín Björg Svavarsdóttir, vinirnir Jóhann og Róbert, Ari Bergur Garðarsson og Garðar Árnason.
    1 hr 20 min
  • #61 – Forystumaður í fluglækningum á Íslandi – Þengill Oddsson
    Rætt er við Þengil Oddsson yfirlækni á heilbrigðisskor Samgöngustofu, en hann á að baki magnaðan áratuga feril í bæði flugi og lækningum og er sá sem leitað er til þegar upp koma vafamál varðandi heilbrigðisvottorð fyrir flugáhafnir. Þengill sinnir alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands og þekkir vel hvaða mál eru þar helst til umræðu og hvaða breytingar eru í farvatninu eins og varðandi hámarksaldur flugmanna, geðheilbrigðismál og fleira. Hann hefur frá um árabil verið forystumaður í fluglækningum á Íslandi, en starfaði einnig lengi sem héraðslæknir á Vopnafirði og fluglæknir hjá Landhelgisgæslunni.
    1 hr 36 min
  • #60 – Ásókn í flugnám hrundi - 4 byrjuðu í janúar og áhugi að aukast á ný - Óskar Pétur Sævarsson
    Rætt er við Óskar Pétur Sævarsson forstöðumann Flugakademíu Íslands um stöðu atvinnuflugnáms í dag og horfurnar framundan. Á kóvid tímanum hrundi aðsókn í atvinnuflugnám hérlendis eins og víðar um heim. Nú þegar atvinnugreinin er að taka all hressilega við sér á nýjan leik gæti blasað við skortur á sérhæfðu starfsfólki sem fylgir auknum umsvifum flugfélaganna. Óskar Pétur telur nauðsynlengt að koma flugnáminu inn í menntakerfið hérlendis og kallar eftir því að ríkið komi með meiri og betri hætti að kostnaði íslenskra nemenda við flugnámið, líkt og gert er á hinum Norðurlöndunum.
    58 min
  • #59 – Airbus vann Boeing í keppninni um Icelandair – Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um þá ákvörðun félagsins að semja við Airbus í stað Boeing varðandi endurnýjun flugflotans. Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um kaup á allt að 25 Airbus XLR vélum og er ætlunin að innleiðing á LR vélum byrji árið 2025. Bogi ræðir einnig afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi, horfurnar framundan og ýmsar áskoranir sem við blasa.
    45 min
  • #58 – Tekjur Play og Iceair hækka – eftirspurnin mikil - Co2 skatturinn kemur – Hans Jörgen Elnæs
    Rætt er við norska fluggreinandann Hans Jörgen Elnæs um stöðu og horfur á evrópskum flugmarkaði og einkum stöðu íslensku flugfélaganna Icelandair og Play. Tekjur þeirra og sætanýting hefur verið afar góð síðustu mánuði og íslensku félögin hafa líkt og fleiri verið að auka verulega framboð á ferðum og kynna nýja áfangastaði. Hans Jörgen segir allt útlit fyrir að eftirspurnin eftir flugi á Atlantshafinu verði umfram framboð flugfélaganna yfir háannatímann í sumar. Farið er yfir þann öra vöxt sem félögin standa bæði í þessa mánuðina og fjallað um mögulegar hættur framundan í rekstri flugfélaganna og í ferðaþjónustunni hérlendis.
    Viðtalið var tekið upp um miðjan apríl.
    56 min
  • #57 – EDA Live – „Lucky“ með blóðbragð í munni og rák í brók – Einar Dagbjartsson
    Rætt er við Einar Dagbjartsson flugstjóra frá Grindvík sem á skrautlegan og merkilegan feril í fluginu og lífinu almennt. Einar segir frá uppvextinum suður með sjó og hvernig hann leiddist út í að læra atvinnuflugið sem hann hefur starfað við í um 40 ár með hléum. Einar hefur barist við bakkus og sigrast á þunglyndi og liðsinnir í dag öðrum sem glíma við erfiðleika af þeim toga. Þátturinn var tekinn upp með áhorfendum í sal Mossley í Kópavogi.
    1 hr 19 min
  • #56 – Skortur á starfsfólki gæti hamlað vexti – kynna þarf og efla flugnám – Matthías Sveinbjörnsson
    Rætt er við Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands um uppganginn sem nú er í fluginu eftir nokkur mögur ár. Fyrirtækin eru farin að keppa um starfsfólk, einkum í sérhæfðari störfin. Aðsókn að námi tengdu flugi minnkaði í heimsfaraldrinum og gæti dregið dilk á eftir sér. Fjallað er um byltinguna sem er að verða í orkuskiptum í fluginu og yfirvofandi kolefnisskatt á flugleiðina til landsins. Þá segir Matthías segir stuttlega frá starfi tekjustýringar Icelandair þar sem hann er forstöðumaður, en deildin náði eftirtektarverðum árangri á síðasta rekstrarári.
    1 hr 5 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners