Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #95 - Kosningafundur Flugmálafélags Íslands 2024 – samantekt
    Þáttur #95 er samantekt Flugvarpsins frá kosningafundi Flugmálafélags Íslands um flugmál sem haldinn var 19. nóvember 2024. Þar var fulltrúum frá framboðum til Alþingiskosninga boðið að mæta og skýra frá stefnu og áherslum sínum í flugmálum. Auk almennra stefnumiða í flugmálum voru framboðin spurð um menntamál flugsins, Reykjavíkurflugvöll og framtíð hans og rekstrarform ISAVIA svo eitthvað sé nefnt. Fundinum stýrði Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins.
    Þeir sem mættu frá framboðum til Alþingis voru: Grímur Grímsson frá Viðreisn, Rúnar Sigurjónsson frá Flokki fólksins, Njáll Trausti Friðbjörnsson frá Sjálfstæðisflokknum, Arnar Þór Jónsson frá Lýðræðisflokknum, Jón Þór Þorvaldsson frá Miðflokknum, Indriði Ingi Stefánsson frá Pírötum, Kristján Þórður Snæbjarnarson frá Samfylkingu og Jóhannes Loftsson frá Ábyrgri framtíð. Enginn fulltrúi mætti frá Vinstri grænum og enginn frá Sósíalistum. Fulltrúi Framsóknarflokksins ætlaði að mæta en afboðaði vegna veikinda.
    2 hr 20 min
  • #94 – Sykursýkin og baráttan fyrir að fljúga – Þristavinir, Norlandair o.fl.– Tómas Dagur Helgason
    Tómas Dagur Helgason segir hér frá fjölbreyttum ferli í fluginu. Það varð honum mikið áfall að missa heilbrigðisvottorðið og þar með flugréttindin vegna sykursýki fyrir um áratug síðan, en hann hefur æ síðan barist ötullega fyrir því að fá reglum breytt í Evrópu í þá átt að heimila sykursjúkum að fljúga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hann hefur haldið ótrauður áfram í fluginu og flýgur í dag einkaflug á grundvelli skírteinis frá Bandaríkjunum og hefur viðhaldið fyrsta flokks heilbrigðisvottorði útgefnu í Bretlandi.
    Tómas Dagur er í dag flugrekstrarstjóri Norlandair og var áður flugrekstrarstjóri Bláfugls. Þar að auki á hann að baki þrjá áratugi sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair. Tómas Dagur er líka formaður DC-3 Þristavinafélagsins sem í eru hátt í fjögur hundruð manns sem vilja viðhalda Þristinum. Það er því af nógu að taka þegar rætt er við Tómas Dag um flugmálin.
    1 hr 31 min
  • #93 – Lakari afkoma Iceair en bjartara framundan – Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um uppgjör félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2024. Tekjur félagsins dragast verulega saman og hagnaðurinn var tæpum tveimur milljörðum króna lakari miðað við sama tíma í fyrra eða 9,5 milljarðar. Bogi ræðir hér um síkvikar breytingar á samkeppnisumhverfinu í Keflavík, betri árangur í frakflutningum og góða afkomu af leiguflugi á vegum Loftleiða. Málefni innanlandsflugsins og Hvassahraun eru einnig rædd ásamt ýmsu fleiru eins og mögulegu samstarfi Icelandair og Air Atlanta.
    1 hr
  • #91 – Flugöryggismálin og RFSS – BIRK og Hvassahraunið - Jón Hörður Jónsson og Matthías Arngrímsson
    Flugöryggismál eru viðfangsefni þessa þáttar. Rætt er við þá Jón Hörð Jónsson formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Matthías Arngrímsson skólastjóra Geirfugls og nefndarmann í ÖFÍA um ýmislegt sem hæst ber í flugöryggismálum um þessar mundir. Tilefnið er árleg flugöryggisráðstefna – Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin verður 10. október n.k. og í þættinum er tæpt á helstu viðfangsefnum ráðstefnunnar í ár eins og GPS truflunum í flugi og netárásum.
    Jón Hörður og Matthías telja ýmislegt gagnrýnivert í nýrri skýrslu varðandi mögulegt flugvallarstæði í Hvassahrauni og í tengslum við það er einnig farið yfir hvernig stöðugt hefur verið þrengt að Reykjavíkurflugvelli mörg síðustu ár. Í þættinum er einnig fjallað um möguleg áhrif vindmylla á flugöryggi, en áætlanir eru uppi um stóra vindmyllugarða bæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og víða um land.
    1 hr 11 min
  • #90 – Enn þrengt að Reykjavíkurflugvelli – bara hnignun og engar lausnir – Sigrún Björk Jakobsdóttir
    Sigrún Björk Jakobsdóttir er framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá ISAVIA og ræðir í þessum þætti um þau fjölmörgu verkefni sem hún er að fást við. Um innanlandsflugvellina á Íslandi fara um 700 þúsund farþegar á ári og þrátt fyrir smæðina er kerfið afar mikilvægt fyrir alla landsmenn, en um leið brothætt að sögn Sigrúnar. Hún gagnrýnir hvernig stöðugt er þrengt að Reykjavíkurflugvelli og skilur ekki hvers vegna sjónarmið sem varða flugöryggi skuli ekki fá betri hljómgrunn. Sigrún Björk fer einnig yfir uppbyggingu á Akureyrarflugvelli og ræðir um ýmsa aðra flugvelli, ekki síst út frá mikilvægi þeirra í sjúkraflugi ef slys verða út um landið.
    48 min
  • #89 – Umsvif Air Atlanta aldrei meiri - 17 breiðþotur um allan heim – Baldvin Már Hermannsson
    Rætt er við Baldvin Má Hermannsson forstjóra Air Atlanta um starfsemi fyrirtækisins og hvernig það hefur vaxið og dafnað á allra síðustu árum. Flugfélagið var eitt fárra sem var á fullu í covid faraldrinum og á undraskömmum tíma tókst að auka vægi fraktflugs mjög hratt þegar botninn datt úr farþegafluginu. Atlanta er í dag með 11 Boeing 747 breiðþotur í fraktflutningum um allan heim og að auki 6 Boeing 777 vélar í farþegaflutningum. Baldvin Már ræðir hér hvernig félagið hefur oft mætt erfiðri samkeppni í gegnum tíðina og hvernig íslensk þekking, reynsla og gæði í flugrekstri hefur fleytt félaginu á þann stað sem það er á í dag.
    1 hr 4 min
  • #88 - Stórframkvæmdir ISAVIA í KEF og farþegum fjölgar – Sveinbjörn Indriðason
    Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA en fyrirtækið er í lykilhlutverki í flugmálum landsins með rekstri og uppbyggingu á innviðum fyrir flugið. Sveinbjörn fer yfir reksturinn á Keflavíkurflugvelli, áskoranir með auknum fjölda farþega, einkum tengifarþega, stórframkvæmdir og vöxtinn framundan þrátt fyrir að ferðamönnum til Íslands fjölgi minna en áætlanir gerðu ráð fyrir.
    Sala á fríhöfninni er á döfinni og Sveinbjörn telur einnig skynsamlegt að fá erlendra fjárfesta inn sem eiganda að Keflavíkurflugvelli líkt og gert hefur verið í nágrannalöndum.
    Sveinbjörn fer yfir breytingar sem hafa orðið varðandi möguleika ISAVIA til að kyrrsetja flugvélar ef til skuldar kemur hjá flugrekanda, eftir að hæstiréttur sýknaði ALC flugvélaleigusalann af kröfu ISAVIA s.l. vor. Þá er rætt um ANS dótturfélag ISAVIA sem rekur íslenska flugstjórnarsvæðið og vandræðagang í skipulagsmálum á Reykjavíkurflugvelli, trén frægu í Öskjuhlíð og ýmislegt varðandi rekstur annarra innanlandsflugvalla landsins.
    1 hr 17 min
  • #87 – Íslenska flugævintýrið er enn í dag – Flugþjóðin – Kristján Már Unnarsson
    Rætt er við Kristján Má Unnarsson frétta- og dagskrárgerðarmann um nýja sjónvarpsþáttaröð sem hann hefur umsjón með og er að hefja göngu sína á Stöð 2 í september. Þættirnir heita Flugþjóðin og þar fá áhorfendur innsýn í þessa stóru atvinnugrein okkar Íslendinga í dag bæði hérlendis og ekki síður útrás íslenska fluggeirans á erlendri grundu. Kristján er sjálfur lærður einkaflugmaður og segir hér frá áhugaverðu fólki og fyrirtækjum í fluginu sem hann hefur tekið tali við gerð þessara þátta.
    51 min
  • #86 - Risaflugfélagið RiyadhAir í bígerð – flugmannslíf í miðausturlöndum – Hannes Ingi Guðmundsson
    Hannes Ingi Guðmundsson þjálfunarflugstjóri RiyadhAir segir hér frá atriðum á merkilegum ferli sínum og þáttöku í því stóra verkefni við að koma rekstri RiyadhAir af stað á næstu mánuðum. Áætlanir félagsins eru að stækka mjög hratt á allra næstu árum og hefur félagið nú þegar yfir 70 B787 Dreamliner flugvélar í pöntun frá Boeing verksmiðjunum.
    Hannes Ingi gefur hlustendum innsýn í líf flugmannsins í miðausturlöndum þar sem hann á mörg ár að baki í vinnu fyrir Emirates í Dubai, en Dalvíkingurinn tók sín fyrstu skref í fluginu hér á Íslandi, en hélt síðan af landi brott til að vinna fyrir RyanAir og svo Emirates.
    1 hr 19 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners