Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #105 – Þakklátur fyrir áratuga feril í björgunar- sjúkra og eftirlitsflugi – Jakob Ólafsson
    Jakob Ólafsson fyrrverandi flugstjóri á þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar segir hér frá ýmsu áhugaverðu sem á daga hans dreif á áratugaferli sem atvinnuflugmaður, lengst af í björgunar- og sjúkraflugi fyrir Landhelgisgæslu Íslands og síðustu árin í gæsluflugi fyrir Frontex. Jakob var einnig flugmaður um tíma hjá flugfélaginu Erni á Ísafirði um það leyti þegar hörmuleg slys urðu hjá félaginu sem m.a. ollu því að hann söðlaði um og fór til Landhelgisgæslunnar. Jakob rifjar upp fyrstu árin í þyrlufluginu, baráttu fyrir að komast í nám í Bandaríkjunum og við að safna reynslu áður en hann var ráðinn til þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar árið 1987. Þá segir hann frá ýmsum merkilegum atburðum sem hann upplifði á sínum langa starfsferli í flugsveit gæslunnar og ekki síst á þyrlunum TF-SIF og TF-LÍF.
    1 hr 18 min
  • #104 – PLAY breytir um kúrs – ætla snúa við taprekstri með útleigu véla og nýjum áherslum í KEF– Einar Örn Ólafsson
    Rætt er við Einar Örn Ólafsson forstjóra lággjaldaflugfélagsins PLAY í tilefni af ársuppgjöri félagsins fyrir 2024. Tap af rekstrinum var rúmir 4 milljarðar króna á árinu en að teknu tilliti til niðurfærslu á yfirfæranlegu skattalegu tapi nemur heildartapið um 9 milljörðum. Forstjórinn er samt brattur fyrir komandi mánuði en segir það taka tíma að breyta kúrsinum á félaginu eins og boðað hefur verið. Ætlunin er að færa 3 vélar félagsins til dótturfélags Play á Möltu sem leigðar verði í arðvænleg verkefni. Um leið verði fókus á arðbærar flugleiðir til og frá Keflavík og minni áhersla á tengiflug til Bandaríkjanna.
    1 hr 4 min
  • #103 – Um flókið viðhald flugvéla – tæknisvið Iceair með verkefni í öllum heimsálfum – Leifur Guðmundsson
    Rætt er við Leif Guðmundsson tæknistjóra Icelandair en hann hefur starfað í tækni- og viðhaldsmálum í fluginu allt frá því hann lauk námi í flugvirkjun árið 1998. Flugflotinn sem tæknisvið Icelandair sinnir í dag telur yfir 50 flugvélar út um allan heim og verkefnin eru í öllum heimsálfum. Leifur segir hér m.a. frá því hvernig flókið viðhald á flugvélum er skipulagt, hvað fer í gang þegar flugvél bilar, hvernig viðhaldi nýrra véla versus gamalla er háttað og ýmislegt fleira áhugavert. Tæknisvið Icelandair sem Leifur stýrir telur yfir 400 manns og þar af eru hátt í 300 flugvirkjar í margs konar fjölbreyttum störfum.
    1 hr 8 min
  • #102- V-ONE - íslenskt hugvit í þjálfun flugmanna – Kristinn Páll Guðmundsson og Össur Brynjólfsson
    Rætt er við þá Kristinn Pál Guðmundsson og Össur Brynjólfsson sem stofnuðu ásamt þremur öðrum fyrirtækið V-ONE þegar kóvid gekk yfir. Stofnendur félagsins sem allir hafa yfirgripsmikla reynslu og þekkingu í þjálfun flugmanna settu á fót flugskóla til að þjónusta erlend flugfélög. Nú örfáum árum síðar hefur fyrirtækið markað sér gott orðspor á alþjóðlegum vettvangi og stærstu kúnnar þess eru flugfélögin DHL Bahrein og DHL Austria. Velta fyrirtækisins hefur vaxið stöðugt síðustu misserin og á árinu 2024 var V-ONE með um 2000 kennslustundir í flughermum Icelandair/CAE í Hafnarfirði. Þá eru umsvif viðskiptavina V-one hérlendis umtalsverð í keyptri þjónustu á hverju ári. Kristinn Páll og Össur segja sér frá tilurð V-One og hvernig þeir sjá fyrir sér að fyrirtækið geti vaxið enn frekar á næstu árum.
    57 min
  • #101 – Spá hagnaði í ár eftir tap á "24 – LIVE frá MidAtlantic í höllinni – Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjör félagsins fyrir árið 2024. Icelandair tapaði um 2,5 milljörðum króna á síðasta ári sem í takti við spá stjórnenda félagsins. Tekjur félagsins jukust um 10 af hundraði í fjórða ársfjórðungi og afkoman batnaði töluvert miðað við sama ársfjórðung 2023. Félagið spáir hagnaði á árinu 2025 uppá 5-8 milljarða króna, sem er þó töluvert undir 8% EBIT markmiði stjórnenda félagsins. Viðtalið er tekið á Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni sem fram fór í Laugardalshöllinni.
    27 min
  • #100 – Hæðir og lægðir í fluginu - spjall við formann FÍA í tilefni dagsins – Jón Þór Þorvaldsson
    Rætt er við Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra og formann í Félagi íslenskara atvinnuflugmanna í tilefni af þætti númer 100. Farið er vítt og breitt yfir sviðið og meðal annnars spjallað um stéttarfélagið, kjarasamninga framundan, Reykjavíkurflugvöll, pólitík og almennt um hæðir og lægðir í flugiðnaðinum. Jón Þór var nýtekinn við embætti formanns þegar ósköpin dundu yfir flugheiminn vegna kóvid faraldurs í ársbyrjun 2020 og þegar Flugvarpið hóf göngu sína í október það ár var Jón Þór fyrsti gesturinn. Það var því viðeigandi að bjóða honum aftur í spjall núna rúmlega fjórum árum síðar og fara aðeins yfir málin.
    1 hr 20 min
  • #99 – Ný mið á nýjum flugvélum og framtíðin björt – ótækt ástand í RKV – Guðmundur Tómas Sigurðsson
    Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson nýráðinn flugrekstrarstjóra Icelandair um ýmsar stórar áskoranir framundan í rekstrinum. Endurnýjun flugflota félagsins er hafin og nú þarf að ákveða hvort áfram eigi að reka breiðþotur eða eingöngu mjóþotur í framtíðarleiðarkerfi Icelandair. Guðmundur Tómas fer yfir óásættanlega stöðu á Reykjavíkurflugvelli og útskýrir hvers vegna hindranir í útreiknuðum flugferlum geta aftrað því að flugfélög geti notað völlinn á öruggan og eðlilegan máta. Guðmundur segist bjartsýnn á að Icelandair nái markmiðum í rekstrinum og geti vaxið og dafnað á næstu árum með Keflavík sem öfluga tengimiðstöð.
    53 min
  • #98 – 2024 gert upp og spáð í 2025 – Örnólfur Jónsson og Matthías Sveinbjörnsson
    Í þessum áramótaþætti er farið yfir helstu fréttir úr fluginu á árinu 2024 og spáð í spilin fyrir 2025. Rætt er við tvo sérfræðinga í flugmálum; þá Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands sem jafnframt er verkfræðingur og fyrrum forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair og Örnólf Jónsson flugstjóra og stjórnarmann í FÍA sem er líka hagfræðimenntaður og löggiltur endurskoðandi. Farið er yfir fréttir síðasta árs af Play, Icelandair, Air Atlanta og öðrum íslenskum flugfélögum, málefni flugskóla rædd og ISAVIA ásamt fjölmörgu öðru. Áhugaverður þáttur fyrir alla sem vilja fylgjast með því sem er að gerast í flugmálum.
    1 hr 38 min
  • #97 – Ekki í baksýnisspeglinum – yfirflugstjóri PLAY - stéttarfélagið ÍFF – Jóhann Óskar Borgþórsson
    Rætt er við Jóhann Óskar Borgþórsson flugstjóra hjá Play og fyrrverandi yfirflugstjóra félagsins, um hans merkilegan feril, starfið og breytingar framundan hjá Play. Eftir meira en áratug sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair tók Jóhann Óskar stökkið árið 2017, sagði upp störfum og réð sig sem flugstjóra til Wow sem fór síðan í gjaldþrot tæpum tveimur árum síðar. Eftir það tók við ævintýri á framandi slóðum, en þegar Play hóf flugrekstur var Jóhann Óskar ráðinn flugstjóri og síðar yfirflugstjóri hjá félaginu og hefur tekið þátt í að byggja upp flugrekstur félagsins sem hann segir hafa verið einstakt afrek og gefandi vinna. Fyrr á þessu ári hætti hann sem yfirflugstjóri og er nú farinn að sinna stéttarfélagsmálum fyrir ÍFF íslenska flugstéttarfélagið, þar sem hann segir alla vinna af heilindum að bættum hag félagsmanna og segir gagnrýni á félagið oft ómaklega.
    1 hr 9 min
  • #96 – Nýir tímar – Airbus í stað Boeing 757 hjá Icelandair – Kári Kárason
    Rætt er við Kára Kárason flugstjóra og „fleet chief“ á Airbus hjá Icelandair um nýju flugvélategundina. Fyrsta Airbus flugvélin í flota félagsins er nýkomin til landsins og von er á þremur til viðbótar fyrir vertíðina næsta sumar. Kári segir hér frá innleiðingarferlinu, þjálfunarmálum og ræðir um muninn á því að fljúga eldri Boeing flugvélum og hinni nýju Airbus.
    47 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners