Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #115 – Svífa hljóðlaust um loftin blá undir afli náttúrunnar - Svifflugið er heillandi sport, ódýrt en krefjandi - Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson
    Svifflugfélag Íslands stendur fyrir kynningarátaki til að vekja athygli á Sviffluginu og hvetja fólk til að prófa þetta stórmerkilega sport. Félagið býr að glæsilegri aðstöðu uppi á Sandskeiði rétt austan við Reykjavík. Í þættinum er rætt við svifflugmennina Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson um þetta merkilega og sögulega sport, aðstöðuna á Sandskeiði og farið er yfir ýmis praktíst atriði sem nýst geta áhugasömum sem vilja prófa Svifflugið.
    50 min
  • #114 – Flugsumarið - flugsýningar, viðburðir, vélflugið og nauðsynleg endurnýjun í grasrót flugsins – Matthías Sveinbjörnsson og Steinunn María Sveinsdóttir
    Rætt er við þau Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands og Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands á Akureyri um flugsýningar og ýmsa fjölbreytta viðburði sem eru á döfinni í sumar bæði fyrir sunnan og norðan. Farið er yfir margs konar fjölbreytt starf í grasrót flugsins um allt land og hvernig margir vinna gríðarlega mikið og óeigingjarnt starf til að viðhalda og efla flugstarfsemi í landinu. Að kynna flugið fyrir almenningi hefur mikla þýðingu og þar leika ekki síst flugsýningar og flugsafnið fyrir norðan lykilhlutverk.
    1 hr 2 min
  • #113 – Play umbyltir rekstrinum með nýju flugrekstrarleyfi á Möltu – kjarasamningar í höfn við flugmenn – Andri Geir Eyjólfsson
    Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Play um nýtt rekstrarmódel félagsins sem nú er að taka á sig mynd í kjölfar þess að félagið fékk nýtt flugrekstrarleyfi á Möltu. Þar fetar Play í fótspor margra annarra flugfélaga sem nýta sér hagstæðara rekstrarumhverfi á Möltu og samnýta um leið fólk og tæki á milli flugfélaganna. Play hefur nýlega náð kjarasamningum við flugmenn til næstu tæplega þriggja ára og nokkrar vélar félagsins eru þegar byrjaðar í leiguflugi fyrir erlenda kúnna.
    Andri Geir á langa og merkilega sögu í fluginu allt frá því hann hóf störf á gólfinu í viðhaldsskýli Íslandsflugs á Reykjavíkurflugvelli. Hann nam flugvirkjun hjá TEC Aviation í Danmörku og hefur gengt ýmsum störfum hjá WOW air, Air Atlanta og Icelandair. Andri Geir hefur verið einn af lykilstarfsmönnum Play allt frá stofnun félagsins árið 2019.
    59 min
  • #112 – Langtímamarkmið í uppbygginu flugáætlunar Icelandair – flotabreytingar, árstíðarsveiflan og þróun KEF sem tengimiðstöðvar – Tómas Ingason
    Í þættinum er rætt við Tómas Ingason framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Nú fer í hönd umfangsmesta áætlun í sögu félagsins og markmiðið er að draga úr árstíðarsveiflunni og auka flugið utan háannatíma. Tómas fer hér m.a. yfir þá breytingu sem er að verða á félaginu með nýjum og langdrægari flugflota, samkeppnina við bæði stóru flugfélögin yfir Atlantshafið og ekki síður við lággjaldaflugfélögin sem fljúga til og frá landinu. Tómas segir að stöðugt sé unnið að þróun á áætlun félagsins bæði til skemmri og ekki síður lengri tíma. Þar er horft til þess hvernig best megi tengja fjarlægari áfangastaði inn í leiðakerfið og efla Keflavíkurflugvöll sem öfluga tengimiðstöð í samvinnu við ISAVIA.
    1 hr 24 min
  • #111 - Reykjavíkurflugvöllur undir hæl borgarinnar – nýjar skipulagsreglur í vinnslu – borgin vill einkaþotur og þyrlur burt og takmörk í starfsleyfið – Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri BIRK.
    Í þessum þætti er rætt við Viðar Jökul Björnsson flugvallarstjóra á Reykjavíkurflugvelli og umdæmisstjóra ISAVIA á Suðurlandi. Á Reykjavíkurflugvelli vinna hundruð manna í sérhæfðum störfum. Völlurinn er miðstöð fyrir Landhelgisgæslu Íslands og er mikilvægasti völlurinn fyrir sjúkraflug í landinu ásamt því að gegna hlutverki sem varaflugvöllur og þar er líka miðstöð fyrir kennsluflug og einkaflug. Nú er unnið að nýjum skipulagsreglum fyrir völlinn sem hafa ekki verið endurnýjaðar síðan 2009. Starfsleyfi heilbrigðiseftirlits borgarinnar þarnast einnig endurnýjunar og á sama tíma óskar borgarráð eftir að takmarka enn frekar umferð um völlinn. Viðar Jökull flugvallarstjóri berst fyrir því að völlurinn geti sinnt sínu hlutverki með sóma og fer hér yfir ýmis mál sem tengjast starfsemi þessa mikilvæga samgöngumannvirkis allra landsmanna.
    53 min
  • #110 – „Það verður að vera vit í vitleysunni“ – Sögur af STOL operation á Grænlandi og ræningjunum með rauða stélið – Jóhann Skírnisson
    Rætt er við Jóhann Skírnisson fyrrverandi flugstjóra hjá Flugfélagi Norðurlands FN, og síðar Flugfélagi Íslands. Hann rifjar upp magnaðar sögur af STOL (Short Take Off and Landing) flugi á Grænlandi þar sem oft var farið að ystu mörkum bæði flugvéla og manna til að láta hlutina ganga upp. Í STOL flugi var flogið á mjög lágum hraða í lítilli hæð og því lítið rúm fyrir mistök eða ónákvæmni. Jóhann er sveitamaður fram í fingurgóma, tillukarl og stoltur „bush pilot“. Hann hóf flugmannsferilinn sem flugkennari á Akureyri, fékk í framhaldi ráðningu á Twin Otter hjá FN. Jóhann er bráðskemmtilegur sögumaður og segir hér frá ótrúlegri elju og dugnaði Íslendinga í flugstarfsemi í afar krefjandi aðstæðum.
    3 hr 35 min
  • #109 – WOW air var í raun löngu gjaldþrota – 6 ár frá falli flugfélagsins – Stefán Einar Stefánsson
    Rætt er við Stefán Einar Stefánsson rithöfund og blaðamann á Morgunblaðinu um fall WOW air, en um þessar mundir eru 6 ár liðinn frá því félagið fór í þrot. Stefán Einar hefur á síðustu vikum skrifað áhugaverðar greinar um síðustu mánuðina fyrir fall félagsins sem varpa nýju ljósi á atburðarásina. Stefán Einar er einnig höfundur bókarinnar WOW Air – ris og fall flugfélags sem kom út skömmu eftir að félagið féll á vormánuðum árið 2019.
    59 min
  • #108 – VAFFÞOTAN - Bylting í hönnun farþegaþotu – „Blended wing-body aircraft“ – Nína Jónsson – síðari hluti.
    Hér fer síðari hluti viðtals við Nínu Jónsson varformann stjórnar Icelandair Group um feril hennar hjá sumum af stærstu flugfélögum heims. Nína er ráðgjafi hjá Jetzero í Kaliforníu þar sem unnið er að byltingarkenndu þróunarverkefni um smíði nýrrar gerðar farþegaþotu sem kölluð er „blended wing-body aircraft“ eða vaffþotan. Nína segir að þarna gæti komið vélin sem Boeing ákvað á sínum tíma að smíða EKKI til að taka við af B757 og B767. Vonir eru bundnar við að vaffþotan sem er á stærð við B767 verði komin á almennan markað innan sjö ára og fyrsta slíka hönnunin á að fljúga innan tveggja ára á vegum bandaríska flughersins sem eldsneytisflutningavél (tanker). Nýstárleg hönnun vaffþotunnar á að stuðla að um 50% minni eldsneytiseyðslu miðað við hefðbundnar þotur af svipaðri stærð á markaðnum í dag.
    52 min
  • #107 - Fædd inn í flugið í Lúx og hefur staðið í stafni stærstu flugfélaga heims – varaformaður Icelandair Group – Nína Jónsson – Fyrri hluti.
    Rætt er við Nínu Jónsson varaformann stjórnar Icelandair Group en hún á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Nína ólst upp í iðandi flugævintýri Íslendinga í Lúxemborg á áttunda áratugnum og fór í framhaldi af því til Bandaríkjanna að læra til atvinnuflugmanns. Fjöldagjaldþrot flugfélaga varð til þess að hún hélt áfram námi og lauk MBA gráðu frá Rensselaer Polytechnic Institute og B.Sc. gráðu í Air Transport Management. Nína hefur á síðustu árum unnið fyrir mörg stærstu flugfélög heims bæði austan hafs og vestan, einkum varðandi skipulagningu og samsetningu á flugflota félaganna. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem rætt er við Nínu. Seinni hluti viðtalsins verður birtur í næsta þætti.
    1 hr 4 min
  • #106 – Leiguflugið – Air broker Iceland – Næg verkefni og vantar flugvélar - Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermannsson
    Rætt er við Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermansson sem eiga og stýra nýju fyrirtæki sem heitir Air broker Iceland og er leigumiðlun með flugvélar og þyrlur. Þeir hafa báðir langa og miklar reynslu í störfum við flugið hérlendis síðustu áratugina sem nýtist vel í að afla og sinna margvíslegum leiguverkefnum fyrir kúnna hvaðanæva úr heimunum. Þeir segja verkefnin vera margvísleg og eftirspurnin stundum umfram það sem flugvélar fást til að sinna. Rætt er um ýmsar breytingar í innanlandsfluginu, ríkisstyrki á flugleiðum og áhyggjur af yfirvofandi fækkun flugvéla í flugflotanum samhliða því þegar Icelandair hættir rekstri Dash 200 véla og ýmislegt fleira.
    39 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners