Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #135 - Vinir Gunnfaxa – landssöfnun til að koma þristinum Gunnfaxa á samgöngusafnið á Skógum – Snorri og Jón Karl Snorrasynir
    Rætt er við bræðurna Snorra og Jón Karl Snorrasyni um landssöfnun sem nú er í gangi til að bjarga flugvélaflaki þristsins Gunnafaxa af Sólheimasandi. Þeir bræður hafa á undanförnum vikum unnið að verkefninu ásamt Ólafi Eggertssyni bónda á Þorvaldseyri. Gunnfaxi var í eigu Þristavinafélagsins og hafði verið í geymslu í skýli á Keflavíkurflugvelli um árabil. Eigendafélag Sólheimasands keypti vélina fyrr á þessu ári til að koma í stað þeirrar sem brotlenti á Sandinum fyrir rúmlega hálfri öld og hefur verið mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Þeir Snorri og Jón Karl segjast hóflega bjartsýnir á að takist að safna nægu fé til að koma vélinni í skjól á Skógum en biðla til áhugasamra, bæði einstaklinga og fyrirtækja að taka þátt í verkefninu.
    Hægt er að leggja málefninu lið með því að leggja inn á söfnunarreikning Vina Gunnfaxa: kt: 621025-1710 og reikningsnúmer: 0515-26-989860.
    26 min
  • #134 – Dýrkeyptur metnaður Evrópu í loftlagsmálum – Ísland ber langhæsta kostnað allra landa í Evrópu sem kemur illa niður á íslenskum flugrekstri - Heiða Njóla Guðbrandsdóttir
    Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur verkfræðing og forstöðumann hjá Icelandair um þann gríðarlega kostnað sem fellur á íslensk flugfélög í formi umhverfisskatta- og gjalda, en hún er sérfræðingur í margs konar kerfum sem sett hafa verið á flugfélögin í nafni loftlagsmála. Heiða Njóla útskýrir í þættinum hvernig ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir virkar og hver þróunin hefur verið og fer yfir plönin framundan. Annar vaxandi kostnaðarliður í rekstri flugfélaga er SAF eða sjálfbært eldsneyti og hefur ESB sett reglur um að notkun á því skuli margfaldast á næstu árum. Þá er einnig til kerfi á vegum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem kallast CORSIA og heldur utan um losun gróðurhúsalofttegunda í alþjóðaflugi, svo eitthvað sé nefnt. Öll þessi kerfi þýða marga milljarða króna kostnað á ári fyrir félag eins og Icelandair og útfærslan þýðir að Ísland ber langhæstu kostnaðarbyrðar allra landa Evrópu í formi loftlagsskatta. Núverandi plön og regluverk gerir ráð fyrir að þessi kostnaður muni bara hækka á næstu árum og það verulega.
    Áhugavert og upplýsandi viðtal um stöðu flugsins í þessu samhengi.
    57 min
  • #133 – Hagur allra að rekstur Icelandair verði arðbær aftur segir flugmaðurinn og fyrrum forstjóri Play sem nú er framkvæmdastjóri flugrekstrar Icelandair – Arnar Már Magnússon
    Rætt er við Arnar Má Magnússon nýjan framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Icelandair, en hann tók nýlega við stöðunni samhliða skipulagsbreytingum sem gerðar voru hjá félaginu til að einfalda yfirstjórnina. Arnar Már er atvinnuflugmaður og hefur að auki langa reynslu af flugrekstri. Hann var forstjóri Play og einn af stofnendum þess, var yfirflugstjóri og flugrekstrarstjóri hjá WOW og þar áður starfaði hann sem flugstjóri hjá flugfélaginu RyanAir.
    Arnar fer í þættinum stuttlega yfir sinn feril, aðdragandann að stofnun Play og ekki síst um stöðu Icelandair í dag og stór verkefni sem þar blasa við til að koma félaginu í sjálfbæran rekstur aftur.
    1 hr 34 min
  • #132 – Alvarleg flugatvik geta verið undanfari slysa – rætt um flugslysarannsóknir og rýnt í alvarlegt atvik yfir Íslandi sem draga má mikinn lærdóm af - Ragnar Guðmundsson
    Rætt er við Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðing og rannsakanda hjá flugsviði Rannsóknarnefndar samgönguslysa um fjölgun alvarlegra flugatvika á síðustu árum. Þá hefur fjölgun alvarlegra flugumferðaratvika á síðustu misserum orðið tilefni til sérstakrar umræðu á fundum RNSA og Samgöngustofu og ýmsar tillögur í öryggisátt eru þegar komnar til framkvæmda. Ragnar hefur starfað í yfir 25 ár í fluginu hérlendis og þar af í 21 ár við rannsóknir flugslysa og alvarlegra flugatvika. Hann miðlar hér stuttlega af sinni áratuga reynslu og rýnt er sérstaklega í skýrslu RNSA um alvarlegt flugatvik sem varð á breiðþotu yfir Íslandi í febrúar 2023. Draga má mikinn lærdóm af því sem þar gerðist og atvikið hefur þegar stuðlað að ýmsum breytingum til hins betra.
    59 min
  • #131 – Getur vont skap valdið flugslysum? Spjall um andlega heilsu og flugöryggi - Jóhann Pétur Wium Magnússon
    Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið settar um eftirlit og flugrekendum einnig gert að hafa úrræði til staðar fyrir sitt starfsfólk. Jóhann Pétur segir að almennt sé fólk að vakna til vitundar um andlega heilsu og umræðan sé af hinu góða því hún vinni gegn fordómum.
    34 min
  • #130 – Nauðsynlegt að snúa við ósjálfbærum rekstri Icelandair – vonbrigði eftir Q3 og útlit fyrir tap af árinu í heild - Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2025. Þrátt fyrir auknar tekjur og ýmis jákvæð teikn í rekstrinum olli rekstrarniðurstaðan vonbrigðum og spáð er tapi á rekstri félagsins í árslok. Eftir 8 ár af ósjálfbærum rekstri segir forstjórinn nauðsynlegt að snúa rekstrinum við eigi síðar en á næsta ári. Hann segir nauðsynlegt að félagið verði samkeppnisfært og gagnrýnir misvitur gjöld í nafni umhverfisins sem virki ekki og valda félaginu gríðarlegum kostnaði. Bogi varar líka við auknum sköttum á flugrekstur og ferðaþjónustuna og gagnrýnir harðlega vinnubrögð innviðaráðherra nýlega þegar sett var reglugerð eftirá í kjölfar falls Play. Ýmis önnur viðfangsefni ber á góma í spjallinu við Boga eins og breytingar á flotamálum, kjarasamninga og áframhaldandi harða samkeppni við stærstu flugfélög Evrópu og Norður-Ameríku.
    58 min
  • #129 - Flugvarpið 5 ára - upptaka frá afmælisviðburði í Sykursalnum 14. október 2025.
    Hér er á ferðinni upptaka frá afmælisviðburði Flugvarpsins í tilefni af 5 ára afmæli hlaðvarps Íslendinga um flugmál. Ljúfir tónar jasskvintetts Jóns Harðar flugstjóra tóku á móti gestum og á sviðinu var tekið hressilegt spjall um flugmálin við nokkra frábæra viðmælendur og sögur sagðar. Fyrst stigu á sviðið tveir menn sem hafa með orðum og gerðum verið mikið í umræðunni síðustu vikurnar, þeir Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA og Eyjólfur Ármannsson ráðherra flugmála. Að því búnu ræddu þau Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélagsins um ógnir og tækfæri í flugheiminum. Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta var svo aðalgestur kvöldsins og fór yfir ótrúlega öfluga starfsemi félagsins víða um heim, umbreytingu félagsins á síðustu árum og hvernig framtíðarhorfurnar blasa við honum. Að endingu steig Jóhann Skírnisson fyrrum flugstjóri og "bush pilot" á svið og sagði nokkrar skemmtisögur.
    2 hr 15 min
  • #128 – PLAY á Íslandi gjaldþrota – tilfærslan til Möltu og breytt staða á flugmarkaðnum - Hans Jørgen Elnæs
    Rætt er við norska flugreinandann Hans Jørgen Elnæs um gjaldþrot Play og síbreytilega stöðu á flugmarkaðnum í Evrópu. Hann segir það hafa komið á óvart að Play hafi farið í þrot svo skömmu eftir endurfjármögnun íslenska félagsins. Markaður fyrir Airbus flugvélar af þeirri gerð sem Play notaði er góður að mati Hans Jørgen og verður forvitnilegt að sjá hvaða leiðir eru færar fyrir leigusala vélanna í framhaldinu. Hann ræðir líka stuttlega um harða samkeppni á norður Atlantshafinu og hvernig það hafi gert félagi eins og Play erfitt fyrir.
    39 min
  • #127 –Flugfélagið Bláfugl gjaldþrota eftir margra ára dómsmál – átakamálin sum svipuð og í umræðunni núna um fall PLAY. Karl Ó. Karlsson lögmaður fer yfir ýmsa anga í Bláfuglsmálinu.
    Rætt er við Karl Ó. Karlsson lögmann FÍA og sérfræðing í vinnurétti um áralangar deilur Bláfugls og Félags íslenskra atvinnuflugmanna fyrir dómstólum, eftir að 11 flugmönnum Bláfugls var sagt upp störfum og verktakaflugmenn ráðnir í þeirra stað á mun lægri kjörum. Bláfugl skilaði inn íslensku flugrekstrarleyfi árið 2024 og var lýst gjaldþrota fyrr á þessu ári. Karl segir frá stöðu málsins núna og hvernig umgengni Bláfugls um kjarasamninga hafi umturnast eftir að Avia Solutions eignaðist félagið. Fyrrum flugmenn félagsins höfðu fengið dæmdar bætur vegna ólögmætra uppsagna og nú hefur þeim kröfum verið lýst í þrotabúið. Karl reifar málið frá ýmsum hliðum og ræðir um misjafnt ráðningarsamband flugmanna við flugrekendur. Viðtalið var tekið upp skömmu fyrir fall flugfélagsins Play en átakamálin í Bláfuglsdeilunni hafa nokkra skírskotun til umræðuefna núna í tengslum við gjaldþrot Play.
    1 hr 2 min
  • #126 – Nauðlendingin á Sólheimasandi enn í fersku minni, segir flugmaðurinn Gregory Fletcher. Ótrúlegt afrek að svífa ísaðri Douglas vélinni langa leið og lenda giftusamlega á sandinum.
    Rætt er við Gregory Fletcher flugmanninn sem nauðlenti Douglas C-117D flugvél bandaríska sjóhersins á Sólheimasandi í nóvember 1973. Fletcher sótti Ísland heim nýverið og fór þá á staðinn aftur í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Af því tilefni sló Flugvarpið á þráðinn til hans, til að heyra hans sögu af þessu einstaka afreki þar sem Douglas vélinni var svifið úr erfiðum veðurskilyrðum yfir Vatnajökli og alla leið niður á Sólheimasand þar sem tókst að magalenda vélinni án þess að nokkrum þeirra sjö sem um borð voru yrði meint af.
    50 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners