Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru:
Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF, Hákon Öder Einarsson í Flugklúbbnum Þyt, Guðmundur Sveinbjörnsson hjá flugskólanum Geirfugli, Sigurgeir Guðbjörnsson flugstjóri á TF-HOT, Viktor Tumi Ólafsson flugmaður hjá Air Atlanta, Kjartan Óli Kristinsson flugkennari, Axel Sölvi Axelsson flugstjóri og Gunnar Ingi Láruson formaður Þyts og flugkennari.