Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson
    Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri Fisfélags Reykjavíkur sem er fjölmennasti flugklúbbur á Íslandi í dag með um 400 félagsmenn. Félagsstarfið þar er blómlegt og Ágúst segir menn ræða opinskátt um atvik og óhöpp sem verða innan hópsins til að aðrir megi læra af þeim, en hann gagnrýnir um leið flugsvið Rannsóknarnefndar samgönguslysa (RNSA) fyrir skort á upplýsingum um flugatvik- og slys á síðustu misserum, til að aðrir flugmenn geti lært af því gerst hefur.
    Í tengslum við átak til að efla öryggi í almannaflugi þá hefur Ágúst hannað og framleitt nýja tegund af veðurstöðvum sem hafa reynst einstaklega vel við íslenskar veðuraðstæður. Veðurstöðvarnar heita Pixweather og eru komnar upp á mörgum stöðum hérlendis og erlendis og henta flugáhugamönnum einkar vel. Ágúst segir líka í þættinum frá fyrirhuguðu Íslandsmóti í flugi sem áætlað er í ágúst n.k. og fræðir hlustendur um ýmsar þrautir sem flugmenn þurfa að leysa þar.
    1 hr 29 min
  • #164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša
    Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka. Jiří er mikill Íslandsvinur og hafði viðkomu hér á landi á leið sinni frá pólnum og heim til Tékklands. Hann segir hér frá ferðalaginu á fisflugvélinni frá Svalbarða til Norðurpólsins, en ferðin krafðist mikils undirbúnings og það tók langan tíma að afla allra tilskilinna leyfa og uppfylla kröfur norskra flugmálayfirvalda um þjálfun og búnað. Viðtalið við Jiří var tekið á Heiði við félagsaðstöðu Fisfélag Reykjavíkur þar sem hann er alltaf aufúsugestur enda á hann orðið marga góða vini í hópi íslenskra fisflugmanna. Jiří segir frá ýmsu fleiru í þessu spjalli og m.a. frá atviki sem hann lenti í þegar fisvél hans skemmdist við lendingu á flugvellinum í Nýjadal fyrir um tveimur árum síðan, en þar komu vinir hans í Fisfélagi Reykjavíkur til bjargar.
    29 min
  • #163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna.
    Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA innanlands til kaffisamsætis í flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg þar sem tímamótanna var minnst. Í þessum þætti fer samantekt Flugvarpsins á þessum viðburði, viðtöl við nokkra þá sem tóku til máls og við heyrum áhugaverða og sögulega yfirverð Stefáns Pálssonar sagnfræðings um aðdraganda þess að Reykjavíkurflugvöllur varð til og á þeim stað sem hann er enn í dag.
    39 min
  • #162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson
    Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla almennt um einkaflugið og stöðu mála í grasrót flugsins á Íslandi. Þau Edda Ingibjörg og Matthías segja líka stuttlega frá því sem þau eru að bardúsa þetta flugsumarið og fara yfir ýmsa flugviðburði sem hafa verið og eru í sumar.
    37 min
  • #161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson
    Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða íslenska náttúru og rík eftirspurn sé eftir því að komast á afskekkta staði þar sem þögnin ríkir. Hann segir þyrluþjónustuna m.a. gríðarlega mikilvægan lið í þjónustu við efnameiri ferðamenn og það sem kallað hefur verið lúxus ferðamennska, en verkefnin eru afar fjölbreytt og kúnnahópurinn alls konar.
    Friðgeir er mikill flugáhugamaður og hefur verið viðriðinn grasrót flugsins í áratugi. Hann er einkaflugmaður og í stjórn Flugmálafélagsins og hlakkar til þess sem hann kallar hápunkt flugsumarsins þegar flughátíðin á Hellu verður í byrjun þessa mánaðar.
    38 min
  • #160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins.
    Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas flugfélagsins. Atlas kaupir 49% í Atlanta og núverandi stjórnendur Air Atlanta eignast 51%. Í ljósi þessara tíðinda mætti fyrstur á sviðið Baldvin Már Hermannsson forstjóri og skýrði frá þessum tíðindum og hvað þau þýða fyrir félagið.
    Í öðrum hluta þáttarins mæta þeir Unndór Jónsson V.P Sales & Marketing, Einar Jón Blandon Director Ground Operations og Haukur Eyjólfsson Manager DevOps en þeir eiga allir það sameiginlegt að hafa starfað lengi fyrir Air Atlanta og hófu sinn starfsferil í vinnu sem flugfreyjur.
    Í þriðja hlutanum er spjallað við flugstjórana Guðrúnu Helgadóttur og Braga Sigþórsson sem bæði eru flugstjórar í dag á Boeing 747 hjá félaginu. Í lokahlutanum segja fyrrverandi flugstjórarnir Bogi Agnarsson og Einar Dagbjartsson nokkrar sögur úr bransanum.
    Þátturinn var tekinn upp 28.maí 2026 í Cafe Atlanta í Kópavogi.
    2 hr 10 min
  • #159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson
    Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réði hann sig til Flugmálastjórnar Íslands, nú Samgöngustofu þar sem hann sinnti eftirliti með flugrekstri í tæpan áratug. Ómar flýgur enn sér til ánægju á Cessnu 185 og stendur að veglegri uppbyggingu ásamt fleirum í Múlakoti í Fljótshlíðinni.
    Einkar áhugavert spjall við flugstjóra sem hefur upplifað og tekið þátt í gríðarlegum breytingum og þróun atvinnuflugs hérlendis og erlendis um áratuga skeið.
    1 hr 52 min
  • #158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson
    Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðinni í Keflavík og öllu flugi félagsins í gangi, alla daga allt árið um kring. Áhugavert spjall sem veitir örlitla innsýn í flókin verkefni við rekstur Icelandair.
    1 hr 20 min
  • #157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
    Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og samanstendur af inngangsorðum frá Matthíasi Sveinsbjörnssyni forseta Flugmálafélagsins, á eftir honum fer Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri á Reykjavíkurflugvelli yfir stöðu vallarins og þar á eftir koma stutt erindi frá hverjum frambjóðenda um afstöðuna til flugvallarins.
    44 min
  • #156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson
    Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborginni, sem jafnrframt er hjartað í innanlandssamgöngukerfinu, skuli háður starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Hann ræðir líka um fyrirkomulag skipulagsmála á Keflavíkurflugvelli og um helstu verkefni sem þar eru framundan.
    Ásælni flugfélaga í að hafa leyfi til flugrekstrar á Möltu eru líka til umræðu í þættinum og þeirri spurningu varpað fram hvort íslensk stjórnvöld geti gert eitthvað til að efla íslenska flugrekendur í alþjóðlegri samkeppni.
    Áhugavert spjall fyrir alla þá sem vilja fylgjast með í flugmálum.
    1 hr 32 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners