Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • #175 - Góður Q3 hjá Icelandair en mikill mótbyr í kortunum að óbreyttu – sóknarfæri í einfaldari flugflota til framtíðar – Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um stöðu félagsins í tilefni af uppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Farið er yfir helstu niðurstöðu uppgjörsins og spáð í spilin varðandi næstu mánuði og misseri. Bogi Nils fer líka yfir stöðu kjarasamningaviðræða við flugvirkja, flugmenn og flugfreyjur sem hafa gengið mjög illa og ekki sér fyrir endann á. Hátt eldsneytisverð og minnkandi varnir félagsins gagnvart eldsneytiskaupum gætu reynst félaginu þungbærar á næstu mánuðum ef ekkert breytist. Í þættinum er einnig rætt um ýmis álitamál sem verið hafa í fréttum eins og kaup Icelandair á flugrekstrarleyfi á Möltu, ETS gjöldin og skattahækkanir, breytingar á flugflota félagsins, fraktflutninga og fleira.
    1 hr 1 min
  • #174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson
    Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í Montreal þar sem hann hefur búið síðustu 20 árin. Þormóður fer yfir ástæður þess að sérfræðingar frá ICAO eru kallaðir til í rannsóknum flugslysa og segir frá nokrum slíkum tilvikum þar sem hann hefur verið í forsvari. Hann segir það hafa aukist á síðastliðnum árum að sérfræðingar ICAO séu kallaðir til við rannsóknir flugslysa. Oft sé það til að auka trúverðugleika rannóknarinnar og ekki síður þar sem ICAO getur haft milligöngu um samskipti við ríki sem eiga í illdeilu eða stríði við nágranna sína þar sem slys hafa orðið. Viðtalið við Þormóð var tekið í lok ágúst s.l.
    1 hr 3 min
  • #173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson
    Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Tilefnið er að Njáll Trausti hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktun á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að hefja uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til að þar megi stðasetja eina björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar til frambúðar. Sigurður og Njáll fara í þættinum yfir rök sem öll hníga í þá átt að þetta sé skynsamleg ráðstöfun og til þess fallið að auka öryggi allra landsmanna.
    50 min
  • #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson
    Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt um ýmis atriði í langri sögu gæslunnar og einkum þær breytingar sem hafa orðið á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur setið í stóli forstjóra. Fjallað er um öryggis- og varnarmálin sem forstjórinn segir að falli vel að hlutverki og starfsemi Landhelgisgæslunnar. Hins vegar vanti að skilgreina hlutverk LHG betur í þeim málum og til lengri tíma. Sérstaklega er fjallað um flugdeild gæslunnar og hvernig sá þáttur hefur breyst á undanförnum árum og áratugum og hvernig tækninýjungar eins og drónar og ómönnuð loftför geta mögulega gjöbreytt því hvernig eftirliti er háttað.
    Georg segir líka stuttlega frá sínum bakgrunni, mótunarárunum í Holti í Önundarfirði og það hvernig tilviljun olli því að hann skráði sig í lagadeild Háskóla Íslands.
    1 hr 8 min
  • #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson
    Rætt er við þau Bjarna Jónsson flugstjóra og Unu Gísladóttur flugmann í tilefni af því að nú er 1 ár liðið frá falli flugfélagsins Play. Þau voru saman í áhöfn á síðasta degi sem félagið starfaði og flugu Airbus vél félagsins frá Keflavík til Dublin að morgni 29. september 2025 þar sem þau fengu fréttirnar um að félagið væri hætt rekstri. Þau segja frá þessum örlagaríka degi, frá vinnunni hjá Play í gegnum árin og ýmsu öðru áhugaverðu á sínum flugferli. Þau Una og Bjarni starfa í dag hjá sitt hvoru flugfélaginu; Una hjá Air Atlanta og Bjarni hjá Marabu Airlines í Þýskalandi.
    59 min
  • #170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie
    Grounded ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík 2.–3. september 2026 og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á vegum íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins AVILABS. Í þættinum er rætt við Svein Akerlie forstjóra AVILABS um efni ráðstefnunnar og einnig eru tveir þátttakendur þau Sherly Lee frá United Airlines og Devon Brown frá WestJet tekin tali. Á Grounded ráðstefnuna mæta sérfræðingar og stjórnendur margra af stærstu flugfélögum heimsins til að ræða hugmyndir og deila mögulegum lausnum sem miðað að því að takast á við flugraskanir og þjónustu við farþega þegar rekstur fer úr skorðum (IROPs). Meðal viðfangsefna voru áhrif óveðurs og lokana á loftrými, takmarkanir í flugumferðarstjórn og innviðum, breyttar væntingar farþega, regluverk og hvernig gervigreind og ný tækni geta breytt viðbrögðum flugfélaga við röskunum.
    35 min
  • #169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson
    Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs hjá RwandaAir sem gerir út frá Kigali. Andri Geir hefur víðtæka reynslu úr fluginu og var einn af lykilstjórnendum Play allt þar til yfir lauk haustið 2025 og var í forystu þess að stofna Fly Play á Möltu, sem nú er komið að hluta til í eigu Icelandair. Í þættinum segir Andri Geir frá gríðarlegri uppbyggingu flugtenginga í Kigali; endurnýjun flugflota RwandaAir og stækkun flugvallarins til að anna allt að 11 milljónum farþega á ári. Andri Geir stýrir nú m.a. breytingu á flugflota RwandaAir, en félagið er að innleiða fjölda Aribus breiðþotna á allra næstu mánuðum og ætlunin er að félagið verði komið í um 30 þotur á næstu 5 árum. Rætt er líka um samkeppnishæfni flugfélaga og hvernig t.d. Malta laðar að flugfélög og sérhæft starfsfólk með lægri sköttum og gjöldum.
    46 min
  • #168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.
    Í þessum þættu er rakin saga Arnarflugs í tilefni af því að á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. Efni þáttarins byggir á samantekt Flugsafns Íslands um Arnarflug, en safnið opnaði sérstaka sýningu tileinkaða félaginu í byrjun sumars í tilefni tímamótanna. Í þættinum er rætt við nokkra fyrrverandi starfsmenn félgsins; flugfreyjurnar Þuríði Sigurðardóttur og Ágústu Halldórsdóttur og einnig Stefán Halldórsson sem gengdi fjölmörgum störfum fyrir félagið í um áratug.
    Í þættinum er líka birtur viðtalsbútur við Gunnar Þorvaldsson einn stofnenda Arnarflugs, en Gunnar var gestur í þætti #54 í Flugvarpinu sem birtur var í upphafi árs 2023.
    2 hr 15 min
  • #167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason
    Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum hætti.
    Erlendur er einn eiganda LOGOS og hann hefur um árabil sérhæft sig í flugrétti og fjármögnun flugvéla og starfar á því sviði m.a. fyrir flugfélög, flugvélaleigufyrirtæki og fjármögnunaraðila. Í þættinum er líka fjallað stuttlega um ETS umhverfisskattana og hvernig hagsmunagæslu Íslands var óbótavant við innleiðingu kerfisins í gegnum EES á sínum tíma. Þá gagnrýnir Erlendur harðlega hvernig innviðaráðherra setti á afturvirka reglugerð í kjölfarið á falli Play haustið 2025. Reglugerðin hafi komið illa við íslensk fyrirtæki í flugrekstri og rýrt traust og tiltrú í viðskiptum erlendra flugvélaleigusala við Íslendinga.
    46 min
  • #166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir
    Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli og er aðalsprautan í skipulagningu hátíðarinnar. Hún segir að græjumenningin sé rík í Austfirðingum og það verði sannkölluð upplifun fyrir gesti að mæta á hátíðina á Egilsstaðaflugvelli þar sem verði fullt af alls konar græjum til sýnis; flugvélar og ökutæki. Þura hefur alla sína tíð lifað og hrærst í fluginu og nýtur vinnunar í turninum í dag. Hún starfaði um tíma sem atvinnuflugmaður og var fyrsta konan til að fá listflugsréttindi (aerobatic) í flugskírteini hérlendis. Hún segir í spjallinu stuttlega frá skemmtilegum atriðum á sínum flugferli, ræðir um vinnunni í turninum fyrir austan en þar er vakt allan sólarhringinn og hún telur mikil tækifæri til staðar að nýta Egilsstaðaflugvöll betur en gert er í dag fyrir bæði atvinnuflug og flugkennslu.
    21 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners