Flugvarpið

Flugvarpið

By Jóhannes Bjarni GuðmundssonNews
Download on the App Store

Flugvarpið episodes

  • # 35 - Ævintýri að fljúga fyrir Atlanta um allan heim – Kristín María Grímsdóttir
    Rætt er við Kristínu Maríu Grímsdóttur flugstjóra á Boeing 747 jumbó breiðþotu hjá Air Atlanta. Kristín María er þrátt fyrir ungan aldur búin að ferðast vítt og breitt um heiminn í starfinu, en hún hóf störf sem atvinnuflugmaður hjá Atlanta aðeins 24 ára gömul og segist alltaf hlakka til nýrra ævintýra í vinnunni. Ýmsar áskoranir eru fyrir unga konu að vinna sem flugmaður á framandi slóðum þar sem réttindi kvenna eru jafnvel mjög takmörkuð. Kristín María segir hér frá ævintýralegu starfi fyrir Atlanta og við fáum örlitla innsýn í þennan heim og hvernig það er fyrir unga konu að samræma fjölskyldulíf á Íslandi og starfsframa sem flugstjóri út um allan heim.
    47 min
  • #34 – Verið hótað og boðnar mútur í starfi hjá ICAO – Þormóður Þormóðsson
    Þormóður Þormóðsson segir hér frá störfum sínum í einni af stærstu deildum ICAO Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, en hann annast þar eftirlit með að aðildarríkin sinni því sem þau eiga að sinna í öryggis- og gæðamálum. Þormóður lærði Aircraft maintenance management við Embry-Riddle Aeronautical Háskólanum, hann er lærður atvinnuflugmaður og að auki með meistaragráðu í hagfræði. Hann hefur lent í ýmsu í sínu starfi, verið hótað og boðnar mútugreiðslur gegn því að hagræða niðurstöðum. Í þættinum fá hlustendur að fræðast um hans feril og heyra ótrúlegar sögur af starfinu sem Þormóður hefur sinnt í úttektum í fluginu um allan heim.
    1 hr 4 min
  • # 33 – íslensk-ameríski herflugmaðurinn – John S. Magnusson
    Rætt er við Jón S. Magnússon sem byrjaði sitt flugnám á Íslandi á áttunda áratugnum og hélt síðan áfram flugnáminu í bandaríska sjóhernum. Hann er líkega einn fárra ef ekki eini Íslendingurinn sem hefur flogið í US Navy. Hann segir hér frá stórmerkilegum ferli, hvernig það var að vera í sjóhernum og t.d. að lenda á flugmóðurskipi. Jón átti einnig yfir 30 ára flugmannsferil hjá Northwest Airlines og síðar Delta Airlines þar sem hann hann var m.a. flugstjóri í fyrsta áætlunarflugi Delta í farþegaflugi til Íslands frá bæði New York og Minneapolis.
    1 hr 2 min
  • #32 –Í farabroddi í innanlandsflugi – Sigurður Aðalsteinsson
    Sigurður Aðalsteinsson segir hér frá upphafsárum sínum í fluginu á Akureyri, þegar hann ásamt fleirum keypti Norðurflug af Tryggva Helgasyni flugstjóra og læriföður sínum. Til varð Flugfélag Norðurlands sem Sigurður tók þátt í að reka í nærri aldarfjórðung frá 1974 til 1997 og skilur eftir sig merkileg spor í flugsögunni. Hann var einnig annar tveggja stofnenda Austurflugs á Egilsstöðum og sinnti á flugrekstri með ýmsum hætti ásamt flugmannsstarfinu. Hann segir líka frá ýmsum ævintýrum úr fluginu hér innanlands og á Grænlandi og hvernig flugmannsstarfið tók stakkaskiptum á hans starfstíma.
    59 min
  • #31 – Þrautgóður á raunastund - Björn Pálsson sjúkraflugmaður
    Þátturinn er tileinkaður Birni Pálssyni flugmanni. Saga hans er ein merkasta saga íslensks flugmanns því líf hans og flugmannsstarf var helgað því að koma fólki til hjálpar í neyð og að hjálpa veikum og slösuðum. Björn varð þjóðkunnur fyrir frumkvöðlastarf sitt sín við sjúkraflugið og þeir voru margir sem áttu honum líf sitt að launa. Í heilan áratug frá 1950 til 1960 flaug Björn sjúkraflug á eins hreyfils flugvélum sem ekki tóku nema einn sjúkling og lækni eða fylgdarmann. Björn stofnaði ásamt Flugfélagi Íslands fyrirtækið Flugþjónustuna hf. árið 1965 og rak það til dauðadags. Áður en yfir lauk hafði Flugþjónustan flutt á fjórða þúsund slasaðra eða sjúkra.
    Í þættinum er rætt við Gunnar Heiðar Guðjónsson flugmann sem starfaði um tíma hjá Flugþjónustunni undir handleiðslu Björns Pálssonar á sjöunda áratugnum. Einnig eru birt valdir kaflar úr viðtölum við Björn sem birtust í Ríkisútvarpinu árið 1970 þar sem hann segir m.a. frá stórmerkilegum sjúkraflugsferðum á sínum ferli. Björn fórst í flugslysi árið 1973.
    1 hr 1 min
  • #30 – Icelandair í gang á ný – Bogi Nils Bogason
    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair Group um stöðuna og sóknarfærin framundan. Icelandair er að koma starfseminni í gang aftur eftir erfiða tíma. Félagið er að fjölga flugferðum hratt og bæta við starfsfólki því eftirspurn eftir flugi er að aukast. Bogi ræðir hér um aukna möguleika með tilkoma Max vélanna, sem eru að nýtast enn betur en reiknað hafði verið með inn í leiðakerfi félagsins. Vélarnar opna einnig möguleika á áfangastöðum og tíðni sem ekki var arðbært með eldri vélum. Fjallað er um samkeppnina í fluginu, tækifærin með breiðþotum í fraktflugi, innanlandsflugið, Loftleiðir og margt fleira.
    55 min
  • #29 – Ferðaviljinn og frelsi að aukast – Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
    Það er útlit fyrir viðspyrnu í ferðaþjónustunni á næstu mánuðum og af því tilefni er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra gestur í þætti #29. Hún segir ferðaþjónustufyrirtækin merkja aukna eftirspurn á næstunni samhliða auknum bólusetningum og meira frelsi til ferðalaga milli landa. Reynsla stjórnvalda af því að opna landamærin fyrir fólki með bólusetningarvottorð er mjög góð og hefur enginn með slík vottorð mælst með veiruna í sér. Þórdís vonast til að aðgerðir á landamærum verði ekki til þess að koma í veg fyrir að fólk nenni að ferðast og er bjartsýn á að ferðaþjónustan taki hratt við sér.
    56 min
  • #28 – Air Atlanta á fullu í faraldrinum– Baldvin Már Hermannsson forstjóri
    Rætt er við Baldvin Má Hermannsson ungan forstjóra Air Atlanta sem hefur á síðustu tveimur áratugum unnið fjöbreytt störf í fluginu og unnið sig til metorða innan fyrirtækisins. Hann segir hér frá þeim ótrúlegu áskorunum sem Air Atlanta hefur staðið frammi fyrir síðustu misserin og gerir enn. Air Atlanta flutti árið 2019 yfir 1,2 milljónir farþega en þegar eftirspurn eftir farþegaflugi hrundi vegna Covid 19 faraldurs í ársbyrjun 2020, breytti félagið algerlega um kúrs og fór alfarið í fraktflutninga á B747 þotum. Sú breyting ásamt gríðarlegum aðahaldsaðgerðum, gerði það að verkum að félagið skilaði hagnaði á síðasta ári og áætlar að gera það einnig á þessu ári.
    46 min
  • #27 – Flugævintýri í Landgræðslu - Páll Halldórsson og Sveinn Runólfsson
    Rætt er við Pál Halldórsson flugmann og fyrrum flugstjóra hjá Landhelgisgæslunni og Svein Runólfsson fyrrum Landgræðslustjóra. Tilefnið er að þeir félagar hafa tekið saman efni í glæsilega bók sem er að koma út um hið stórmerkilega ævintýri sem unnið var á eins hreyfils flugvélum við að græða upp örfoka land á árunum 1958 til 1992. Þeir Páll og Sveinn segja hér stuttlega frá þessu merka frumkvöðlastarfi, flugvélunum, starfsfólkinu og ekki síst flugmönnunum sem tóku þátt í þessu áhættusama flugi.
    Páll var fyrsti flugmaðurinn sem ráðinn var beint til starfa hjá Landgræðslunni tvítugur að aldri og Sveinn var starfsmaður hjá Landgræðslunni í upphafi áburðarflugsins og varð síðar landgræðslustjóri um áratuga skeið.
    44 min
  • #26 – Allt um rannsóknir flugslysa – Þorkell Ágústsson hjá RNSA
    Fjallað er um flugslysarannsóknir og hvernig þeim er háttað í þætti #26 með Þorkel Ágústssyni rannsóknarstjóra flugsviðs hjá Rannsóknarnefnd Samgönguslysa. Þorkell hefur unnið lengi við flugslysarannsóknir og segir frá sínum störfum, um það hvernig þessar rannsóknir fara fram og hvernig unnið er með niðurstöðurnar.
    Rannsóknir á atvikum og slysum eru gríðarlega stór þáttur í að viðhalda og auka flugöryggi. Þetta snýst ekki bara um slysin sem komast í fréttirnar heldur líka ýmis atvik sem verða og rata jafnvel aldrei í fjölmiðla. Rannsókn á örsökum slíkra atvika, getur komið í veg fyrir önnur sambærileg atvik og jafnvel mannskæð slys síðar.
    49 min

About Flugvarpið

From the publisher's feed

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið…

More shows like Flugvarpið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Bílar, fólk og ferðir by Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

Bílar, fólk og ferðir

1 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners

Sjókastið by Aríel Pétursson

Sjókastið

0 Listeners