„Þetta markar mann alltaf held ég. Mjög djúpur sársauki en dýpkar mann að einhverju leyti,“ segir Freyr Eyjólfsson. Hann og Hólmfríður Anna Baldursdóttir eiginkona hans urðu fyrir þeirri sáru lífsreynslu að missa barn undir lok meðgöngu.
Freyr er nýfluttur aftur til Íslands ásamt fjölskyldu sinni eftir margra ára dvöl erlendis. Hann var gestur Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur í Segðu mér. „Ég held að þú búir til sjálfan þig,“ segir Freyr þegar hann er spurður hvort hann hafi einhvern tímann fundið sig, eða gert tilraun til þess. „Með gjörðum og orðum. Ég er ekkert mikið fyrir svona heimspekiþrugl um að finna sjálfan sig,“ segir Freyr sem hefur meðal annars verið fréttamaður, tónlistarmaður, heimavinnandi húsfaðir og nú endurvinnslutalsmaður svo fátt eitt sé nefnt.