Share Fyrsta sætið
Share to email
Share to Facebook
Share to X
By Ritstjórn Morgunblaðsins
The podcast currently has 74 episodes available.
Arnar Grétarsson, fyrrverandi þjálfari Vals í Bestu deildinni, fór yfir viðskilnaðinn við Val, gerði upp frammistöðu íslenska landsliðsins í nýliðnum landsleikjaglugga og spáði í spilin fyrir lokaumferðir Íslandsmótsins ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, og Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, hituðu upp fyrir úrslitaleik liðanna í Bestu deildinni í fótbolta sem fram fer á Hlíðarenda á morgun. Þá ræddu þær einnig um enska boltann ásamt því að fara yfir helstu fréttir vikunnar.
Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfubolta, gerði upp síðasta tímabil þar sem jarðhræringarnar á Reykjanesskaga höfðu mikil áhrif á bæði liðið og bæjarfélagið, ræddi um flutningana úr Grindavík, framtíðina og framtíð körfuboltans í Grindavík ásmt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks í Bestu deildinni, fór yfir fyrsta árið sitt í starfi og tímabilið hjá Blikum, ræddi frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í síðasta landsleikjaglugga og spáði í spilin í ensku úrvalsdeildinni ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fór yfir eftirminnilegustu íþróttaafrek Íslands frá því hann tók við embætti árið 2016, ræddi um framtíð íþrótta á Íslandi ásamt því að ræða aðstöðumál landsliðanna, sem og fjárskortinn sem íþróttahreyfingin þarf að glíma við.
Eldfjallafræðingurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Þorvaldur Þórðarson fór yfir fyrstu leiki Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi, ræddi um liðin sem eru líklegust til árangurs og þau sem hafa valdið mestum vonbrigðum á mótinu, ásamt því að ræða um Bestu deildir karla og kvenna ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gaupi, lagði íþróttafréttamennskuna á hilluna eftir 32 ár í bransanum síðasta sumar en hann fór yfir fréttir vikunnar, ræddi um íslenska karlalandsliðið í handbolta og fótbolta, kvennalandsliðið í fótbolta, gerði upp tímabilin í handboltanum og fótboltanum ásamt því að spá í spilin í Bestu deildum karla og kvenna ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvar Finnssyni.
Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir fór yfir vegferðina og þrautagönguna að Ólympíuleikunum 2024 sem fram fara í París í Frakklandi í sumar en hún varð á dögunum fyrst Íslendinga til þess að tryggja sér keppnisrétt í greininni á Ólympíuleikum.
Bjarni Helgason gerði upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta og leikmaður Nantes í Frakklandi, gerði upp tíma sinn í Frakklandi, ræddi um meiðslin sem hafa verið að plaga hann undanfarin tvö ár, fór yfir fyrsta árið hjá landsliðinu undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar ásamt því að fara yfir Bestu deildir karla og kvenna og spá í spilin fyrir úrslitakeppnirnar í handboltanum og körfuboltanum ásamt íþróttablaðamanninum Haraldi Árna Hróðmarssyni.
The podcast currently has 74 episodes available.
153 Listeners
7 Listeners
24 Listeners
29 Listeners
11 Listeners
94 Listeners
10 Listeners
27 Listeners
32 Listeners
71 Listeners
24 Listeners
27 Listeners
2 Listeners
9 Listeners
3 Listeners