Gerður Kristný rithöfundur og Bryndís Loftsdóttir hjá Félag íslenskra bókaútgefenda urðu vinkonur í leikskóla. Síðar á lífsleiðinni stunduðu þær Kaffibarinn grimmt með ginhlaup í poka og þóttust vera frægar til að smygla sér fram fyrir röðina.
Ljóðskáldið Gerður Kristný sendi frá sér nýja ljóðabók fyrir þessi jól en sú nefnist Heimskaut og er níunda ljóðabók höfundar. Í bókinni í fer ljóðmælandi í heimskautaferðir í blíðri og óblíðri náttúrunni og segir frá sögulegum atburðum. Einn af hennar dyggustu lesendum, yfirlesari, stuðningskona og vinkona í gegnum tíðina er Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Þær kynntust fyrst á leikskólanum Álftaborg þar sem þær léku sér í mömmó með foringja leikskólans, henni Gunnu, sem réð öllu í mömmuhorninu. Bryndís flutti í Fellahverfið svo þær misstu sambandið í grunnskóla en fundu hvor aðra á unglingsárunum.