Guðný Bjarnadóttir er ljósmóðir, útfararstjóri og djákni, en hún segist hafa jafn gaman að því að ræða lífið og dauðann. „Það er nokkurn veginn það sem við vitum öll. Það er líka mikilvægt að ræða hvernig við förum úr þessum heimi, alveg eins og við komum inn í hann,“ segir Guðný sem var gestur Sigurlaugar M. Jónasdóttur í Segðu mér.
„Það sem við reynum er að gera stundina fallega,“ segir Guðný um starf sitt sem útfararstjóri. „Það er líka mikilvægt að ræða við fullorðið fólk sem á unglinga, og jafnvel börn, um hvað þau treysta sér til að vera með í þessum aðstæðum,“ segir Guðný sem kemur úr Reykholtsdal í Borgarfirði. Sjálfri finnst henni mikilvægt að börn taki þátt í sorgarferlinu en hún var tíu ára þegar afi hennar dó á 94. aldursári. „Mamma hjúkraði honum heima í sveitinni, við systkinin erum öll fædd heima, Þetta var bara hluti af starfi fólks á heimilinu, bæði upphafið og endirinn.“ Morguninn sem afi hennar lést tekur hún eftir því að það er óvenjuhljótt á heimilinu og lokað er inn til afa hennar. „Ég man að ég sá ásjónu afa míns og fannst hann mjög friðsæll“.