Spegillinn

Hækkað útsvar, óþekkjanlegar norðurslóðir og virkjanir undir 10 MW


Listen Later

Spegillinn 13. október 2022.
Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir.
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon.
Til stendur að hækka útsvar um næstu áramót. Það boðar innviðaráðherra til að koma til móts við fjárhagsvanda sveitarfélaga. Sigurður Ingi Jóhannsson í viðtali við Kristján Sigurjónsson.
Olíuleit í íslensku efnahagslögsögunni verður bönnuð með lögum. Þetta segir forsætisráðherra sem segir norðurslóðir verða óþekkjanlegar innan fárra áratuga verði ekki brugðist strax við loftslagsvánni. Haukur Holm sagði frá.
Um hundrað nemendur í Kársnesskóla flytjast um set meðan unnið er að viðgerðum vegna myglu. Rætt var við Björgu Baldursdóttur. Alexander Kristjánsson sagði frá
Alþjóðleg kvikmyndahátíð er nú haldin á Ísafirði í annað sinn. Írönsk og pólsk kvikmyndagerð er í brennidepli, en stjórnandi hátíðarinnar segir írönsku myndirnar veita innsýn í veruleika þarlendra kvenna. Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir talaði við Fjölni Baldursson.
Brottrækur leyniþjónustuforstjóri í Danmörku, sem sætir ákærum fyrir uppljóstrun ríkisleyndarmála, segist vera fórnarlamb pólitískra hrossakaupa. Alexander Kristjánsson tók saman.
--------------------------------------------------------
Rekstur íslenskra sveitarfélaga er í járnum og sveitarstjórnir um land allt glíma við hækkandi útgjöld vegna viðamikilla málaflokka sem þeim ber skylda til þess að sinna. Þar ber málefni fatlaðra hæst. Sveitarstjórnarmenn hafa kvartað sáran undan að ríkið hafi dregið lappirnar í að tryggja nægjanlegt fjármagn til þess að sveitarfélögin geti sinnt fötluðum á sómasamlegan hátt. Fjármálaráðstefna Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í morgun og Spegillinn ræddi við Heiðu Björgu Hilmisdóttur nýkjörinn formann sambandsins. Kristján Sigurjónsson tók saman.
Til stendur að endurskoða stærðarviðmið virkjana. Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar er sammála um þau mál. Ákjósanleg og endurbætt útfærsla er þó öllu meira á reiki. Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins er formaður umhverfis- og samgöngunefndar og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar er varaformaður nefndarinnar. Hafdís Helga Helgadóttir ræddi við þau.
Tuttugasta flokksþing kínverska kommúnistaflokksins stendur fyrir dyrum. Það hefst á sunnudag og ef allt gengur samkvæmt áætlun verður Xi Jinping hylltur sem aðalritari flokksins í þriðja sinn og þar með valdamesti maður landsins frá því að Maó Tse-tung var og hét. Hann verður þá jafnframt forseti herráðsins og forseti landsins. Ásgeir Tómasson sagði frá.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

469 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

26 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

10 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners