Spegillinn

Hækkun fasteignamats, lykkjuhneyksli á Grændlandi og örvunarpakkar


Listen Later

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% frá yfirstandandi ári samkvæmt fasteignamati Þjóðskrár fyrir næsta ár, en samanlagt mat íbúða hækkar um 23,6%. Fyrir ári var hækkunin um 7,4% á landinu öllu.
Utanríkisráðherra lagði fram tillögu á Alþingi um heimild til ríkisstjórnar að staðfesta fyrir Íslands hönd fyrirhugaða viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar að bandalaginu.
Danska ríkið beitti grænlenskar unglingsstúlkur hreinu ofbeldi þegar lykkjan var sett í þær án þeirra vitundar á árunum 1966 til 1975. Þetta segir Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, ritari Siumut stjórnmálaflokksins á Grænlandi.
Hagsjá Landsbankans segir hagkerfið á réttri leið. Landsframleiðsla jókst um 8,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi, borið saman við sama tímabil í fyrra. Rebekka Líf Ingadóttir talaði við Gústaf Steingrímsson.
Grunnskólakennari segir að stórefla þurfi hinseginfræðslu í skólum, hinsegin nemendum líði oft illa í skólanum.
Tveggja mánaða útgöngubanni vegna covidfaraldursins hefur verið aflétt í Shanghai, stærstu borg Kína. Ýmsar takmarkanir verða þó í gildi enn um sinn. Ásgeir Tómasson sagði frá.
---------------------
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% frá yfirstandandi ári samkvæmt fasteignamati Þjóðskrár fyrir árið 2023, samanlagt mat íbúða hækkar um 23,6%. Þetta er umtalsvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 7,4% á landinu öllu. Fólk virðist hafa hlaupið til að athuga með nýja fasteignamatið því áhuginn var slíkur að vefur þjóðskrár réði hreinlega ekki við álagið. Hafdís Helga Helgadóttir talaði við Kára S Friðriksson, hagfræðing hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun.
Lykkjunni var komið fyrir í 4.500 grænlenskum unglingsstúlkum á árunum 1966 til 1970. Þetta var gert með samþykki danskra yfirvalda en án vitundar stúlknanna og foreldra þeirra. Aðgerðin var liður í átaki danskra stjórnvalda til að hægja á fólksfjölgun á Grænlandi. Málið hefur legið í þagnargildi þar til nú. Kristján Sigurjónsson talaði við ingU DórU GuðmundsdóttUr Markussen í Nuuk á Grænlandi. og tók pistilinn saman.
Á tímum pestarinnar var boðið uppá örvunarsprautur fyrir mannfólkið og örvunarpakka fyrir atvinnulífið. Örvunarsprauturnar þóttu góðar en í Noregi hallast ráðamenn nú að því að örvunarpakkarnir hafi verið of örvandi. Hagkerfið er farið á fyllerí, hagvöxtur óstöðvandi, vextir leika lausum hala og leitun að ráðum til að hemja ölvunina. Gísli Kristjánsson tók saman.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

8 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

25 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

12 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

25 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

70 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

9 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners